Feykir


Feykir - 11.06.2009, Blaðsíða 9

Feykir - 11.06.2009, Blaðsíða 9
KYNBÓTASÝNING 23/2009 Feykir 9 HESTAUMFJOLLUN FEYKIS Hesta- tryggingar k Löngufjörum Kynbótasýningar á Sauöárkróki og Blönduósi Vel yfir tvöhundruð hross í kynbótadóm Nú þegar fólk fer að ferðast um landið ríðandi á hestum er forvitnilegt að glugga í tryggingarmál ef eitthvað skyldi fara úrskeiðis í ferðalaginu og slys verður á hrossum, mönnum og munum. Hverniger hesturinn tryggður ef hann skyndilega stekkur út á þjóðveginn og verður fyrir bíl eða þá eigandinn gagnvart tjóni sem hesturinn kann að valda? Munur getur verið á hvort slys verða þar sem lausaganga stórgripa er bönnuð eða ekki. Þar sem lausagangan er bönnuð, eru meiri líkur á því að eigandi gripsins verði dæmdur skaðabótaskyldur ef hann sleppur einhverra hluta vegna upp á veg og fer t.d. fyrir bíl sem kemur aðvífandi heldur en þar sem ekkert lausagöngubann er til staðar. Þar sem hrossarekstur er á ferðinni við þjóðveginn, þá ber rekstrarmönnum að standa þannig að rekstrinum að engin hætta stafi af honum. Ef ekki er staðið nægilega vel að rekstrinum, er hægt að leiða líkur að því að rekstrarmenn gætu orðið skaðbótaskyldir að hluta eða að öllu leyti. En ef niðurstaðan verður á þann veg að nægilega vel hafi verið staðið að rekstrinum, þá ber ökmaður bifreiðarinnar ábyrgð á þessu tjóni og ábyrgðartrygging eða skyldutrygging bifreiðarinnar myndabætatjónið áhestinum. Ef bíllinn er í kaskó, þá myndi kaskótrygging bifreiðarinnar bæta tjónið á bílnum, en ef bílinn væri ekki í kaskó, þá sæti bíleigandi uppi með tjónið sitt. -1 svona málum getur eignatj ón orðið töluvert, en ef um slys á fólki er að ræða, þá gæti svona mál hlaupið á mörgum milljónum, janfvel tugum. Og vegna þessa þá skora ég á hestamenn og eigendur hesta að skoða sín tryggingmál mjög vel, segir Sigurbjörn Bogason hjá tryggingafélaginu VÍS á Sauðárkróki. -Lendi hestur fyrir bíl og drepst og bíleigandi talin eiga sök á þessu tjónið, þá greiðir ábyrgðartrygging á bílnum sannarlegt verðmæti og því skiptir það máli hvort þetta er reiðhestur eða eitthvert verðlaunahross. Þá yrði greitt meira fyrir þetta verðlaunahross heldur en reiðhestinn. Fyrir nokkrum árum var það þannig að nærri því undatekninglaust var bíleigandi talin eiga sök á svona tjónum. En í dag eru breyttir tímar og svona mál hafa verið að lenda hjá dómstólum og það gerist oftar og oftar að eigendur hesta eru dæmir skaðabótaskyldir ef hross sleppur upp á veg og verður fyrir bíl, að sögn Sigurbjörns. Bændur eru mjög almennt með svokallaða ábyrgðartryggingu á rekstri búa sinna sem myndi bæta svona tjónefþeiryrðudæmdir skaðabótaskyldir ef t.d. hross slyppi upp á veg hjá þeim. -Hestaeigendur aðrir en bændur eru ekki jafn almennt tryggðir fyrir svona málum eins og bændur og því hvet ég hestaeigendur að skoða þessi mál mjög vel. Ég myndi segja að þessi trygging væri ekki dýr miðað við hvaða hagsmunir eru í húfi. Iðgjald fer eftir því hvað þetta eru mörg hross sem verið er að tryggja, segir Sigurbjörn. Yfirlitssýningar kynbótahrossa á Blönduósi og Sauðárkróki eru nú afstaðnar og fjöldi hrossa dæmdur á hvorum stað. Eins og við er að búast er allur gangur á því hversu góð hrossin eru eða vel undirbúin þau eru fyrir sýningu. Á Sauðárkróki voru alls 123 hross sýnd og hlutu alls 115 hross fullnaðardóm. í fyrstu verðlaun komust 39 hross og hæst dæmda hrossið var Styrnir frá Neðri Vindheimum en hann var í flokki 7 vetra og eldri stóðhesta og hlaut aðaleinkunina 8.37. í flokki 6v stóð Ræll frá Gauksmýri efstur með 8.27. MöttullfráTorfunesi var hæstur 5v stóðhesta með 8,29 og í flokki 4v fékk Emil frá Torfunesi hæstu einkunn 7,82. Þær hryssur sem stóðu hæstar á Sauðárkróki voru Esja Sól frá Litlu Brekku en hún hlaut einkunina 8,27 í flokki 7 vetra og eldri, Elding frá Torfunesi í flokki 6v með 8,16, Krækja frá Efri Rauðalæk með 8,30 hjá 5v hryssum og Freydís frá Syðri Ey stóð efst 4v með einkunina 8,07. Á Blönduósi vorul09 hross sýnd og alls 91 þeirra fengu fullnaðardóm. Alls náðu 15 hross 1. verðlaunum og var Seiður frá Flugumýri annað hæst dæmda hross sýningarinnar en hann hlaut 8.52 í aðaleinkunn í flokki 5 vetra stóðhesta. Grásteinn frá Brekku stóð efstur 7v og eldri stóðhesta með einkunina 8,46, Stympill frá Vatni hlaut einkunina 8,1 í 6v flokki, 5v stóð Seiður frá Flugumýri efstur eins og áður sagði með 8,52 og hjá 4 vetra stóðhestum varð það Trymbill sem hæstu einkunn fékk 8,5. Hjá hryssunum stóð Myrkva frá Torfunesi hæst í flokki 7v og eldri með einkunina 8,47, Líf frá syðri Völlum hlaut einkunina 8,23 í 6v flokknum, Sónata frá Stóra Ási 8,43 í 5v flokknum og Vordís stóð hæst í 4v flokknum með einkunina 7,97. Áttþú skemmti- lega mynd? Sendu hanal Netfang: feykir@feykir.is Síminn er 455 7176 Mynd vikunnar Jósep Sigfússon á Sauðárkróki lætur ekki deigan síga í hesta- mennskunni þótt kominn sé hátt á níræðisaldur. Þessi mynd var tekin afJósep þegar hrossunum var sieppl í sumarhagana fyrir stuttu. Mynd: Hörður Sigurjónsson Er eitthvað að frétta? Feykir Hafðu samband - Síminn er 455 7176

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.