Feykir


Feykir - 11.06.2009, Blaðsíða 10

Feykir - 11.06.2009, Blaðsíða 10
10 Feykir 23/2009 Skagafirði er skipt upp á eftirfarandi hátt: □ Hlíðarhverfið: gulur Hólar: grænn □ Túnahverfið: rauður □ Varmahlíð: appelsínugulur ■I Gamll bær: blár E3 Hofsós: fjólublár Cötumarkaður Ef þú átt skemmtilegar vörur eða hannyrðar og vilt vera með borð á götumarkaði Lummudaga. Hafðu þá samband í síma 865-5309 eða sendu línu á lummudagar@gmail.com Götugrill Götugrill á Sauðárkrók. Hver gata skipuleggur sitt grill og skapar skemmtilega stemmingu. Endilega hafið samband við nágrannann og athugið grillmálin í ykkar götu. Skagafjarðarleikur Bæjir og hverfi fá sinn lit og keppast svo um hver er með flottustu og frumlegustu skreytingarnar. Blöðrur, andlitsmálning og fleira geturverið íþeim litum. Lummudagar í Skagafirði helgina 26—28. júní Lummur hér, þar og alls staðar Lummudagar í Skagafirði er hátíð sem haldin verður í fyrsta skipti í ár. Skipulögð dagskrá er á Sauðárkróki, Hólum og í Varmahlíð. Nú er unnið hörðum höndum að dagskrá hátíðarinnar og mun hún birtast mjög fljótlega. Unnið er að hugmynd götugrills á Sauðárkrók yfir lummuhelgina. Með götugrilli er átt við að allar götur á Króknum skipuleggi sitt grill og búi til skemmtilega stemm- ningu. Við hvetjum því allar götur að íhuga sitt grillpartý, jafnvel finna fulltrúa í hverri götu. Taka svo fram grillspaðana og góða skapið. Þá verður keppt um bestu Skagfirsku lummuuppskrift- ina og munu vinningshafar mæta á sjálfan lummudaginn þann 27. júní og baka uppskrift sína fyrir framan Sauðár- króksbakarí. Dómarar í lummukeppninni eru bakara- snillingarnir í bakaríinu. Lummuuppskriftir má senda á netfangið feykir@feykir.is merkt „Lummur". Valdar uppskriftir ásamt vinningsuppskriftinni verða birtar í Feyki. Ritstjóralummur: 2 ‘A bolli hveiti 1 ‘A bolli grjómgrautur 1 msk. sykur 2 egg 50 gr. smjörliki 1 tappi vanilludropar Mjólk eftir þörfum og rúsínur efvill. Allt hrært saman brætt smjörlíki síðast. Steikt á pönnu upp úr djúpsteikingafeiti og sykri stráð yfir lummurnar um leið og þær koma af pönnunni. Bestar eru lummurnar með ískaldri mjólk. Ferskur á netinu Sýning myndlistarmannsins BASKA um örlög Reynistaðarbræðra og dulúð hálendisins verður opnuð laugardaginn 13. júní kl. 14. Hálendiskórinn undir stjórn Sólveigar S. Einarsdóttur syngur við opnunina. Verið velkomin. Opið alla eftirmiðdaga í sumar. Nánari upplýsingar um opnunartíma og sýningar í stöðvum í sumar eru á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000. Dimmir hratt a drauga sloð * Blöndustöð £J Landsvirkjun Árangur fyrir alla

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.