Feykir


Feykir - 11.06.2009, Qupperneq 8

Feykir - 11.06.2009, Qupperneq 8
8 Feykir 23/2009 Fyrirtæki vikunnar Vesturfarasetrið á Hofsósi Mikilvægur hlekkur í samskiptum íslands og Vesturheims p? fi!! ■ nm iii 9 ( Vesturfarasetrið á Hofsósi hefur fest sig í sessi sem fræðasetur og upplýsingamiðstöð fyrrir forvitna fslendinga og ekki síður fyrir fólk af íslenskum ættum vestan Atlantsála. Nýlega heimsótti stór hópur Vestur-íslendinga Vesturfarasetrið og Hofsós, þar sem sérstök dagskrá var sett upp þeim til heiðurs. Þögul leiftur Þegar komið er inn í Vesturfarasafhið tekur á móti blaðamanni Kanadamaður af íslenskum ættum, Nelson Gerrard að nafni og býður hann mig velkominn. Nelson er að heíja sitt níunda starfsár hjá setrinu en hann aðstoðar fólk við að finna ættingja sína bæði hér á íslandi og vestanhafs. Hann er íslenskur í móðurætt, fimmti ættliður Vestur- íslendinga, en nú vex úr grasi vestanheims sjöundi ættliður vesturfara. Að sögn Nelson er þetta ekki aðeins starf heldur mikið áhugamál hjá honum einnig og sem dæmi segir hann að nýverið hafi hann hringt í gistihús á Egilsstöðum sem er ekki í frásögur færandi, nema að því leyti að hann fór að forvitnast um ættir konunnar sem svaraði símanum. Eftir skamma stund gat hann sagt henni að nú væri staddur á Hofsósi, maður úr Vesturheimi sem væri frændi hennar. Nelson talar lýtalausa íslensku og hefur yfirgripsmikla þekkingu á ættfræði og tengslum milli manna sem nýtist gríðarlega vel forvitnum og fróðleikfúsum gestum setursins. Einnig hefur hann verið að safna saman gömlum myndum og bréfúm sem liggja í skúffúm í Norður-Ameríku og eiga það á hættu að glatast. Nú stendur uppi sýning í Vesturfarasetrinu sem Nelson átti hugmynd að en þar eru til sýnis nærri 400 ljósmyndir af íslenskum landnemum og sýnd m.a. ljósmyndavinna vestan hafs á tímum vesturferða á árunum 1870 - 1910. Ber sýningin heitið Þögul leiftur og geta margir séð forfeður sína og skyldmenni í nýjum heimkynnum í Ameriku. -Nelson er fróðastur um ættir íslendinga í Vesturheimi af öllum núlifandi mönnum, þori ég að fúllyrða, segir Valgeir Þorvaldsson famkvæmdastjóri Vestuerfarasetursins. -Þaðþýðir lítið fyrir þig að stæla við hann, bætir Valgeir við hlæjandi og hefur alveg rétt fyrir sér. Valgeir hefur byggt setrið upp af mikilli eljusemi með hjálp góðra manna og meðan blaðamaður sest niður hjá honum til að spyrja um setrið laumar Guðrún kona hans nokkrum staðreyndum í umræðuna og greinilegt að þar hefúr Valgeir sterkan bakhjarl. Um síðustu helgi var mikil hátíð haldin á Hofsósi þar sem um eitthundrað erlendir gestir komu og nutu dagskrár sem skipulögð var sérstaklega fýrir þá. Ýmislegt var í boði um allan bæ en hámarki náði dagskráin í Höfðaborg þar sem margir kunnir listamenn komu fram. -Þetta er fyrsta hátíð með þessu fyrirkomulagi, segir Valgeir. -Við gerðum tilraun fyrir nokkrum árum með íslendingadag eins og við kölluðum það en það var ekki mikill undirbúningur fyrir hann og ekki margir sem komu að vestan. En núna lét ég þessa hugmynd frá mér fyrir tveimur árum og mikill undirbúningur hefúr verið í gangi. Þessi hátíð er komin til með að vera og reiknum við með að gera hana að árlegum viðburði. Ég hef rætt þetta við íslensk stjórnvöld og er greinilegt að þeim er umhugað um að halda í þessi tengsl og finnst þá vel við hæfi að settur verði upp dagur eða helgi til þess að heiðra minningu þeirra sem fóru og sýna afkomendum þeirra viðeigandi sóma, segir Valgeir. Á dögum kreppu er ekki úr vegi að spyrja hvort hún hafi áhrif á starfsemina. -Jú, hún hefúr náttúrulega áhrif á allt en við It- Sýningin Þögul leiftur i Vesturfarasetrinu er mjög áhugaverð og skemmtileg íslenski hesturinn var verðugur fulltrúi múttökunefndar um síðustu helgi. Mynd: Linda Fanney Skólakór Kársness skemmti gestum hátíðarinnar með glæsilegum söng. Mynd: Unda fanney Valgeirsdóttir erum á lífi þó við höfúm misst mikið að styrktaraðilum. Þeir hafa ýmist farið á hausinn eða eru á hraðri leið í þá átt, segir Valgeir en er samt bjartsýnn á framhaldið. -Við höfúm aldrei fengið orð fyrir það að vera svartsýn en eins og ég segi þá tekur þetta á alla og engin leið að spá um framtíðina. Það eru svo margir óvissuþættir sem taka þarf tillit til. Fleiri uppákomur eru í farvatninu hjá Vesturfarasetrinu og er þar helst að nefna kvöldvökur í baðstofúloftsstfl og er þá verið að horfa á að setja þær upp í pakkhúsinu. -Við ætlum að setja upp einskonar skemmtiprógram með þeim ágætu listamönnum sem við eigum, segir Valgeir og bætir við að setrið komi að fleiri viðburðum s.s. Jónsmessuhátíð á Hofsósi en þar sameinast allir aðilar á staðnum að gera hátíðina sem glæsflegasta. Jónsmessuhátíðin var upphaflega haldin á vegum Vesturfarasetursins en nú hafa félagasamtök á staðnum tekið við því starfi. Á síðasta ári komu allt að átta þúsund gestir í Vesturfarasetrið og teikn eru á lofti um aukinn fjölda í ár þar sem íslendingar ætla í auknum mæli að ferðast innanlands í sumar. Að sögn Valgeirs eru gistimöguleikar fyrir 30 - 40 manns á Hofsósi en á teikniborðinu núna er hótelbygging sem staðsetja á í brekkunni fyrir ofan setrið. Þar er um að ræða 50 herbergja hótel og að sögn Valgeirs fara ffamkvæmdir af stað innan skamms tíma. -Þetta er alveg sér verkefni en hugmyndin kemur héðan, segir Valgeir og nefnir að þetta sé meira en hugmynd. -Mfldl undirbúningsvinna hefúr farið ffam og fjölmargir þættir sem þarf að taka tillit til. Menn glannast ekld með svona verkefhi, segir Valgeir og útflokar ekki að byrjað verði á byggingu hótels á árinu.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.