Feykir - 24.07.2009, Qupperneq 7
27/2009 Feyklr 7
Hörður Pálsson, Stebbi Ped og Lóli.
Hilmir Jóh heillar afgreiðsludömurnar upp úr skónum.
Geirmundur færir Bjarna Har blómvönd i tilefni dagsins.
Bjarni Haraldsson
Fjöldi fólks mætti i veðurbliðunni.
Geirmundur og Hilmir sömdu lag til heiðurs Bjarna.
Bjarni ásamt blómarós sem heimsótti hann i tilefni dagsins.
Pessir ungu menn voru ekki ósáttir við appelsínið.
Myndirnar úr safni Bjarna voru óspart skoðaðar.
Pað var i nógu að snúast á afmælisdaginn - enda bensinið með 9 kr. afslætti.
1
1
Kærar þakkir
Það gladdi okkur öU sem
komum að því að minnast 90
ára afmælis Verslunar
Haraldar Júlíussonar að
finna þann mikla hlýhug
þess fjölda fólks sem
heiðraði okkur með nærveru
sinni sl. laugardag, 11. júlí.
Fyrir þetta erum við
afskaplega þakklát og vUjum
við senda okkar bestu þakkir
og kveðjur af þessu tUefni.
Sá mikli fjöldi sem sam-
fagnaði með okkur sýnir
góðan hug sem við metum
mikils. Góðar kveðjur, gjafir
og blómasendingar undir-
strikaði það sömuleiðis. Fyrir
allt þetta getum við seint
fullþakkað.
Ég vil sérstaklega þakka öllum
þeim sem lögðu hönd á
plóginn við undirbúning
afmælishátíðarinnar í og við
verslunina. Þar ber hæst
fjölskylda mín sem lagði sig
mjög fram í aðdragandanum
og á hátíðardaginn til þess að
allt færi vel fram. Þá vil ég
þakka þeim listamönnum
sem komu fram fyrir þeirra
ómetanlega framlag. Það fór
vel á því að það voru
skagfirskir tónlistarmenn sem
fluttu tónlistina á afmæli
verslunarinnar. Þá vil ég
þakka forstöðumanni og öðru
starfsfólki Byggðasafns Skag-
firðinga fyrir ómetanlegt
framlag þeirra. Fjölmargir
aðrir lögðu og hönd á plóginn
og voru reiðubúnir til að
greiða fyrir undirbúningi
hátíðarinnar með margvís-
legum hætti og vil ég
sérstaklega færa öllu því góða
fólki bestu kveðjur mínar.
Það eru ekki margar verslanir
eða önnur fyrirtæki sem geta
státað af 90 ára starfstíma.
Lykillinn að því hefur verið
gott starfsfólk, sem og gott og
farsælt samstarf okkar við
íbúa Skagaíjarðar og aðra
viðskiptavini, nær og fjær. Við
höfum reynt í starfi okkar að
vinna með fólkinu og fyrir
fólkið og það hefur metið það
með því að sýna okkur tryggð
á þessum árum. Fyrir það
vildum við meðal annars
þakka með því að efna til
afmælishátíðarinnar á laugar-
daginn.