Feykir - 13.08.2009, Qupperneq 7
29/2009 FeykJr 7
4 sundgarpar syntu frá Drangey sl. laugardagskvöld
Brjálæói í sjálfu sér
Heiða ásamt fjölskyldu sinni. Jóhanni Ingólfssyni og Jónínu Daníelsdóttur foreldrum sínum, Þórónu
systur sinni og Louisu Lind dóttur sinni að ógleymdum Árna Gisla Brynleifssyni, unnusta Heiðu.
Sjósundkapparnir Heimir
Öm Sveinsson, Þórdis Hrönn
Pálsdóttir, Þorgeir
Sigurðsson og
Skagfirðingurinn Heiða
Björk Jóhannsdóttir syntu á
laugardagskvöldið frá
Drangey og í land á
Reykjaströnd.
Þau þrjú síðast nefndu
syntu Drangeyjarsund sem er
um 7 km en Heimir Örn gerð
sér lítið fyrir og synti
Grettissund á tímanum 1
klukkustund og 36 mínútur
en Grettissundið er 800
metrum lengra. Heiða Björk
hefur fr á því hún var lítil stelpa
stefnt á þetta sund en hún er
fyrsta konan til þess að ljúka
Drangeyjarsundi auk þess að
vera fyrsti einstaklingurinn
sem syndir þessa leið á
bakinu.
Sjálf æíði Heiða sund í 10
ár auk þess sem hún þjálfaði í
fimm ár og það má því segja
að sundið hafi alltaf staðið
henni nærri. -Ég veit ekki
einu sinni sjálf af hverju það
að synda Drangeyjarsund
hefur verið draumur hjá mér.
Ætli ástæðan hafi ekki bara
verið sú að þetta var eitthvað
svo stórt og flott að reyna við
þetta, segir Heiða og brosir.
-Ég held að ég hafi verið 12
ára ef ekki yngri þegar ég
ákvað að ég myndi einhvern
tímann ná að synda þetta
sund, bætir hún við.
Þrátt fyrir drauminn stóra
fór Heiða ekki að stunda
sjósund fyrr en fyrir ári síðan
en þá fór hún ásamt Þórdísi
vinkonu sinni út að Grettislaug
til að busla í sjónum og fara
síðan í laugina. Á sama tíma
kom Benedikt Hjaltason
þangað í þeim erindagjörðum
að synda Drangeyjarsund.
Hann hafði þá skömmu áður
klárað að synda yfir
Ermasundið. -Þeir komu
þarna Benedikt og félagar og
buðu okkur að koma með. Ég
sló til og synti smá hluta
leiðarinnar með honum. Það
var mín fyrsta sjósundreynsla.
Síðan er ég aðeins búin að vera
að æfa í vetur en það er ekki
mikið.
Það má segja að áhuginn
hafi verið til staðar en Heiða
keppti í fyrsta sinn í sjósundi
þann 18. júlí þegar hún varð
þriðja í svonefndu
Hríseyjarsundi á eftir Þórdísi
Hrönn og Þorgeiri. -í
framhaldinu tóku við stífar
æfingar í höfninni við
Suðurgarðinn því ég ætlaði í
Drangeyjarsundið í sumar.
Síðan var ég eiginlega hætt við
það. Bar því við að ég hefði
ekki tíma en þá lét Ólöf Lovísa,
systir mín, í sér heyra og sagði
að ég skyldi ekki voga mér að
hætta við þennan draum minn
og það var því eiginlega hennar
vegna að ég á endanum lét
mig hafa þetta, segir Heiða og
hlær.
Hvað finnst fólki um það
þegar þú skellir þér út í
sjóinn við Suðurgarðinn?
-Æi, ég veit það ekki. Þetta er
orðin svo eðlilegur hlutur fyrir
mér að ég spái ekki mikið í
það hvað aðrir haldi. Fólk er
örugglega að spá í hvað ég sé
klikkuð og auðvitað er þetta
brjálæði í sjálfu sér, svarar
Heiðar og hlær.
Tveimur dögum áður en
Heiða náði að synda Drang-
eyjarsundið reyndi hún við
það í fyrsta sinn en lenti þá í
leiðinlegu veðri og hætti sundi
eftir að hafa verið tvo tíma í
sjónum. -Það varð allt í einu
svo rosalega hvasst. Ég var 20
mínútur að synda 1 kílómetra
en næsta klukkutímann og
íjörutíumínúturnar komst ég
ekki nema 2 kílómetra til
viðbótar. Aðstæður voru
einfaldlega ekki til staðar,
útskýrir Heiða.
Það var síðan í logni og
blíðu á laugardag sem Heiða
lét til skarar skríða á nýjan leik
og að þessu sinni náði hún að
synda alla leið. Varð á undan
Þórdísi í land og þar með
fyrsta konan til þess að Ijúka
Drangeyjarsundi. -Þetta var
ekki eins erfitt og ég var búin
að búa mig undir að þetta gæti
orðið. Ég neita því ekki að mér
var orðið verulega kalt síðasta
klukkutímann en alls ekki
þannig að ég væri að gefast
upp. Síðan fór maður bara í
laugina, borðaði þrúgusykur
og drakk heitt kakó á meðan
hiti var að koma í kroppinn
aftur. Ég var aðeins eftir mig
daginn eftir en strax á
mánudag var ég orðin fín,
segir Heiða.
Aðspurð um frekari afrek í
sjósundinu segist Heiða vera
að fara í nám í hjúkrunarfræði
nú í haust og það komi til með
að eiga allan hennar tíma í það
minnsta fram að áramótum.
-Ef ég fer suður er aldrei að
vita nema maður taki
Viðeyjarsundið en ég stefni
ekki að neinu. Það verður bara
að koma í Ijós hvort ég geri
eitthvað meira af þessu eða
ekki, segir Heiða að lokum.
Heiða vill koma á framfæri
góðum þökkum til
björgunarsveitarinnar fyrir
fylgdina en þeir Valdimar og
Stefán Valur fylgdu í bæði
skiptin.
Staðreyndir um sundið á
laugardag.
Heiða var tyrst kvenna til þess að klára
Drangeyjarsund auk þess sem hún var 1.
einstaklingurinn til þess að synda á bakinu.
Hún synti á 2,25 klst.
Þórdís er elst kvenna til þess að ná að synda
Drangeyjarsund en hún synti á tímanum 2,
32 klst.
Þorgeir var elsti maðurinn til þess að synda
sundið auk þess sem hann þáði enga
næringu úr bátnum á meðan á sundi stóð.
Þorgeir synti á tímanum 2.21 klst.
Heimi Öm gerð sér lítið tyrir og synti
Grettissund á tímanum 1 klukkustund og
36 mínútur. Heimir Öm synti í samskonar
búning og þríþrautariþróttamenn nota.
Úthlutun úr Menningarsjóöi KS
9 verkefni
hlutu styrk
Styrkþegar hlýða á kaupfélagsstjóra.
Þórólfur Gíslason Kaupfélags-
stjóri úthlutaði þann 5. ágúst
sl. úr Menningarsjóði KS.
Mennlngarsjóðurinn hefur
starfað í 46 ár og hefur
hann öll árin veitt styrki til
ýmisskonar menningarstarfsemi
í héraðinujsönglistar, leiklistar,
fþróttamála, heimildasöfnunar
og ritstarfa auk annarra verkefna
er til menningarauka og framfara
heyra. Þessi verkefni hlutu styrk
að þessu sinni:
1. Ferðasjóður fatiaðra
Skagafirði
Menningarsjóður KS úthlutaði
2007 prmunum til að kosta
ferðalag fatlaðra. Þetta tókst afar
vel og viljum við nú endurtaka
þetta með því að veita að nýju
fjármunum til að kosta ferðalag
fyrirfatlaða í Skagafirði.
2. Maddömur Skagafirði
Hópur kvenna á Sauðárkróki
sem vilja auka fjölbreytni og
efla mannlíf í Skagafirði. Þær
hafa tekið í fóstur „( svarta
húsið)“Aðalgötu 16B þar
sem þær eru að koma sér upp
aðstöðu.
3. Viðbragðshópur sjálfboða-
liða á Norðurlandi á vegum
Rauða krossins
Sjálfboðaliðar er starfa á svæðinu
frá Sauðárkróki til Kópaskers.
Hópnum er ætlað að vera í
stakk búinn til að sinna almennri
skyndihjálp og 1. stigs áfallahjálp.
Styrkurinn erætlaðurtil kostnaðar
við þjálfun.
4. Davíð Öm Þorsteinsson
Sauðárkróki
Fjárstuðningur vegna þjálfunar
og keppnisferðar í eðlisfræði
unglinga til Mexico í sumar.
5. Styrkur til kaupa á Minja-
safni Kristjáns Runólfssonar
Menningarsjóður KS styrkir
Sveitarfélagið Skagafjörð til
kaupa á Minjasafni Kristjáns
Runólfssonar. Hjalti Pálsson
hafði frumkvæði að því að ná
þessu safni aftur til Skagafjarðar
og náðst hefur samstaða
nokkurra aðila um fjárstuðning
svo Skagflrðingar geti aftur
eignast um margt þetta merka
safn muna.
6. Endurbygging Aðalgötu 16.
„Kaffi Krókur"
Menningarsjóður KS telur við hæfi
að veita þeim Kristínu Magnúsdótt-
ur og Sigurpáli Aðalsteinssyni
viðurkenningu fyrir sériega vel
heppnaða endurbyggingu á Aðal-
götu 16 Sauðárkróki. Endurbygging
hússins ber vott um góðan smekk
og mikinn metnað þeirra er að því
standa.
7. Hús Frítímans
Samstarfsverkefnis sem Hús
Fn'tímans tekur þátt í varðandi
ungt fólk frá 4 löndum: Finnlandi,
Tyrklandi, Liháen og Möltu
auk Islands. Verkefnið tengist
menningu og tómstundamálum
landanna. Lokaþáttur verkefnis
verður hér á Sauðárkróki frá 14.
til 22. ágúst.
8. Heimildarmynd um Bjama
Haraldsson og Verslun Haraldar
Júlíussonar sem nú er 90. ára.
Styrkurtil gerðar heimildarmyndar
um Bjarna sem starfað hefur hér
á Króknum og sett svip sinn
á bæjarmyndina um áratuga
skeið. Kvikmyndafélag Árna
Gunnarssonar ráðgerir að Ijúka
gerð myndar í lok þessa árs.
9. Uppbyggingprentmynjasafns
á Hólum í Hjaltadal.
Menningarsjóður telur rétt að
verða að liði með fjárstuðning við
að koma upp prentminjasafni að
Hólum. Safnið verður á vegum
og eign Hóladómkirkju. Saga
prentlistar og bókaútgáfu er
nátengd Hólastað. Því fögnum
við því frumkvæði sem hér er sýnt
með að koma upp prentminjasafni
á Hólum