Feykir - 13.08.2009, Side 9
29/2009 Feykir 9
girðinguna í kringum kirkjuna.
Þau þurftu að skrapa gömlu
málninguna af, grunna og
mála upp á nýtt. Sigurður
Grétar Sigurðsson kom og
grillaði æðislegt lambakjöt
fyrir hópinn, voru víst sumir
að smakka þess háttar kjöt í
fyrsta skipti. Fannst þeim nokk
sérstakt hvað grillið var nálægt
kirkjunni og stóð þeim ekki á
sama á stundum. Við þökkum
Sigurði Grétari kærlega fyrir
aðstoð hans og frábært kjöt.
Seinna sama dag fengu þau að
fara í Kidka ehf, prjónastofuna
og fengu að rölta um
verksmiðjunabæðitilskoðunar
og kaupa.
Á þriðjudeginum kláruðu
þau Hrútatunguréttina, verkið
gekk svo vel að þau ákváðu að
fara í Byggðarsafnið. Þar tók
Ingibjörg Jóna Gestsdóttir á
móti þeim og veitti þeim frían
aðgang sem við þökkum
kærlega fyrir. Þeim fannst ekki
mikið koma til byggingarinnar
að utan og urðu því undrandi
að sjá hvað væri mikilfenglegt
innandyra.
Sama þetta kvöld fengu þau
íslenskukennslu hjá Laura Ann
Howser þar sem þau lærðu það
helsta eins og góðan daginn,
góða kvöldið, takk, já, nei og
fleira. Seinna hengdu þau upp
þvottasnúrur hjá félagsheim-
ilinu og hengdu föt á. Þeim
fannst það skrítið en
skemmtilegt.
Svo kom
unglistarhátíóin sjálf
Miðvikudagurinn fór í undir-
búning, þau röðuðu upp í
félagsheimilinu fyrir opnun-
arhátíðina, settu stomptunnur
hjá Nytjamarkaðnum og gerðu
vigtarskúrssjoppuna tilbúna.
Einnig gerðu þau skilti fyrir
harmonikkubattlið og voru
dugleg að finna til og hjálpa
með það sem þurfti fyrir
kvöldið.
Á fimmtudeginum fóru
nokkrir í leiki á Mjólkur-
stöðvartúninu og komu með
leiki frá sínum heimalöndum,
á meðan aðrir gerðu félags-
heimilið klárt fyrir breikdans-
námskeið og heimsmeistara-
mótið í Kleppara. Gunnhildur
tók að sér að kenna þeim
Kleppara svo þau gætu átt
möguleika á að keppa á móti
heimsmeisturunum.
Föstudeginum var eytt f
undirbúning fyrir fyrirtækja-
keppnina, þurfti að redda
þrautum, stórum púslum og
verkefnum sem þurfti að leysa.
Þetta var mjög vel gert og voru
þau orðin spennt fyrir næsta
degi til að sjá hvernig allt hefði
nú heppnast. Seinnipart
dagsins fóru þau í Borgarvirki,
þar sem þau settu upp tjald,
friðarkerti, hljóðkerfi, skilti og
fleira. Það rigndi af og til og
ekki var ofhlýtt, en Gunnhildur
sá við því og bauð þeim heim
Pawel (Póllandi), Asier (Spáni), Kira (Mkstjóri, Pýskalandi), Aitor (Spáni), Paulina (Póllandi)
ítienne (Frakklandi), Olivier (Belgiu), Héléne (Frakklandi), Karoline (Tjékkóslovakíu), Diego
(Spáni), Philipp (Þýskalandi).
til foreldra sinna á Stóru-Borg í
súpu og brauð. Á tónleikunum
um kvöldið skenktu þau heitu
kakói handa gestum og
hjálpuðu til við frágang og
gekk allt mjög vel. Um kvöldið
sátu þau á tónleikum Kimi
Records á Café Sirop.
Á laugardeginum komu
þau hoppköstulunum fyrir og
sáu um allan undirbúning að
sápuboltanum, einnig grilluðu
þau pylsur handa gestum og
gangandi og sáu um að gefa
gos, mála börn í framan, sáu
um gæslu á hoppuköstulunum
og margt fleira. Fyrirtækja-
keppnin gekk vel og fannst
Veraldarvinum þetta vera mj ög
skemmtilegt og voru vonum
framar hvað allt hefði gengið
vel. Við tók svo undirbúningur
sem gekk vel, því stefnan var
tekin á ball um kvöldið með
Skítamóral! Fannst þeim
stemningin á ekta sveitaballi
vera einstök og sérlega
skemmtileg.
Þau lögðu svo land undir
fót á sunnudegi. Á sunnu-
daginn stendur líka til að telja
seli í samvinnu við Selasetur
Islands.
Húnaþing vestra bauð
þeim á mánadaginn í ferð á
hestbak á Gauksmýri. Fyrir
nokka var það fyrsti ferð á
hestbak og þótti þeim það
mjög gaman. Siðasta verkefnið
á Hvammstanga var að hreinsa
gluggana á grunnskólanum að
utan, mála leiki á malbikið
fyrir utan og hreinsa
grunnskólann þar sem þau
höfðu gist.
Á þriðjudeginum voru allir
farnir. Við kunnum öllum
þeim sem að heimsókn þeirra
komu, okkar bestu þakkir.
Birgit Kositzke
Björn Þorgrímsson
Brynja Bjarnadóttir
Byggðarsafnið
íþróttamiðstöð Húnaþings vestra
Daníei Geir Sigurðsson
Önnu og Villa, foreldrum Gunnhildar
Gudrun M.H. Kloes
Gunnhiidur Vilhjálmsdóttir
Grunnskóii Húnaþings vestra
Heimamenn á Ánastöðum
Helga Hinriksdóttir
Ingibjörg Jóna Gestsdóttir
Kathrin Martha Schmitt
Laura Ann Howser
Matthildur Hjálmarsdóttir
Prjónastofan (Kidka ehf)
Selasetur
Sigurður Grétar Sigurðsson
SigurðurHólm Arnarsson
og öllum þeirsem lögðu hönd á
þlóg, bæði sem komu að
unglistarhátíðinni og sem gerðu
heimsókn Veraldan/ina
eftirminnilega.
Karnivalstemning á lokadegi Sumar T.Í.M.
Hoppkastalar og
furoubúningar
Það var líf og fjör þegar
Sumar T.Í.M. sló upp
Karnival - fjölskylduveislu
til þess að fagna sumar-
lokum þetta árið.
Börnin mættu mörg hver
í sinum uppáhalds búningum
auk þess sem þeim var boðið
upp á andlitsmálningu.
Boðið var upp á grillaðar
pylsur tú þess að byrja með
en síðan hélt hersingin á
Flæðarnar þar sem börnin
fengu að leika sér í
hoppköstulum og öðrum
uppblásnum leiktækjum.
Krakkamir fengu flotta andlitsmálningu.
Brjálæðislegt fjör ikastaianum.
Þessir voru ánægðir með Sumar T.Í.M.
Snæbjön eða Diljá segir Konráði eitthvað stórmerkilegt. Hann er á svipinn alveg eins og
hann sé að reyna að átta sig á þvíhvor tvíburinn þetta sé.