Feykir - 22.10.2009, Blaðsíða 8
8 Feykir 39/2009
( Baj'na/iot'n
UPPS
Krakka/xd!ar~
400 gr. hakk
1 mosarella ostapoki
1 ritzkexpakki
1 egg
Season all eftir smekk
Öllu blandað saman og búnar til litlar bollur sem síðan eru
steiktar á pönnu og því næst settar í eldfast mót.
Næst er það sósan.
‘A l rjómi
Tómatsósa að smekk
Sósunni er hellt yfír bollurnar og rifnum osti stráð yfir. Látið
malla í 200 gráðu heitum ofni í 20 mín. Á meðan sjóðið þið
spaghettí og berið fram með bollunum. Einfalt og rosalega
gott.
GfUM&ÓL&rf AUSTAAVATAA
05 Pir&n5CÁ
Nemendur og kennarar
Grunnskólans austan Vatna
skelltu sér á skógræktar-
svæðið, sem Grunnskólinn
Hofsósi hefur til umsjónar
austan við þjóðveginn, föstu-
daginn 2. október. Farið var
í það að grisja og hreinsa
svæðið og gekk vinnan mjög
vel,
Uppfinningamennirnir Rúi og Stúi hafa undanfarnar vikur búið
um sig í Bifröst á Sauóárkróki ásamt fylgdarliói sínu. Til stóó aó
senda þeim tölvupóst en þar sem þeir voru búnir aó bræóa úr
tölvunni sinni fór útsendari Feykis á staóinn
Rúi oq Stúi
heimsóttir í Bifröst
Hverjir eru Rúi og Stúi?
R: Ég er Rúi og ég er uppfinn-
ingamaður, dansari og söngvari
og allt!
S: Og ég heiti Stúi og ég er líka
uppfinningamaður og svona
; allskonar bara.
Hvað gerið þið?
R: Sko ég geri morgunleikfimi á
hverjum morgni, sjáðu bara svona
i - einn tveirogA B C, einn tveirog
; A B C...
S: Rúi passaðu þig! Ja eins og
: aðrir uppfinningamenn finnum við
upp allskonar hluti...
R:... ogsoldið af prakkarastrikum
! líkasko...
S: ... en í raun erum við bara að
hjálpa fólki með ýmislegt sem það
vantar eða er bilað og svoleiðis.
Þannig að þið eruð með
Iþjónustufyrirtæki?
S: Nei, ekki alveg. Skoviðbjuggum
til rosalega vél sem heitir Nemesis
og það er hún sem gerir allt. Hún
getur gert við allskonar hluti, til
dæmis potta og gleraugu og líka
búið til sokka fyrir Hannes og kaffi
handa okkur og allskonar.
R: Jahá og bestu jólaköku í heimi,
ég kenndi henni það! Ég fæ
alveg svakalega góðar hugmyndir
þegar ég sef sko. Einu sinni var
Stúi eitthvað svo niðurdreginn og
voðalega slappur, eða það leið
eiginlega yfir hann sko. Þá fann
ég upp XX pumpuna, hún virkar
rosalega vel til að hressa upp á
fólk í yfirliði.
Hvernig virkar þessi vél,
Nemesis?
R: Rosalega vel sko, maður bara
snýr smurningshjólunum, ýtir á
takkana og togar svo samtímis í
kraftsnerilinn og áreynsluskaftið
og-
S: Uss Rúi þetta er leyndarmál!
Sannleikurinn er sá að Nemesis
virkar mjög vel - ef ÉG stilli
hana. Við lentum nefnilega einu
sinni í heilmiklum vandræðum
eftir að Rúi stillti vélina vitlaust.
Bæjarstjórinn hafði beðið okkur
að gera ákveðið verkefni fyrir sig
og við vorum komnir með allt
klárt sko, en þá bilaði Nemesis
og það varð allt vitlaust í bænum!
Það var sko saga að segja frá því!
Svo góð saga að félagarnir þarna
í Kópavoginum, Skúli Rúnar
Hilmarsson ogörn Alexandersson
skrifuðu leikrit um það. Þeim hjá
Leikfélagi Sauðárkróks fannst
leikritið svo brjálæðislega fyndið
að þau ákváðu að sýna það, ætla
að byrja bara um næstu helgi.
R: Já þetta er ekkert smá gaman I
Við Stúi fáum að vera á sviðinu
allan tímann því að við leikum
okkur sjálfa!
Hvernig getur maður fengið að
sjá þetta leikrit?
R: Nú þú bara mætir í Bifröst!
S: Nei maður verður að fara fýrst
í Kompuna til Herdísar og kaupa
miða þar, annars hleypa þau
manni ekki inn sko.
R: Játs eða hringja, það stendur á
plakatinu sem er búið að hengja
upp úti um allt, þetta bleika með
krákunni okkar, hún er nú meiri
gallagripurinn! Ég skal sko segja
þér það að einu sinni......
S: Nei Rúi, þau vilja kannski bara
sjá það íleikritinu!
R: Já ég skil! Heyrðu allt í lagi
bless þá, sjáumst í Bifröst!
Zt 5 li ITIenningarráð
■ ■ II Norðurlandsvestra