Feykir - 10.12.2009, Blaðsíða 11
46/2009 Feykir 11
( MATGÆOINGAR VIKUNNAR )
Höróur og Petra kokka
LJúfir réttir
a aðventu
Þessa vikuna eru þaó Höróur Sigurjónsson og Petra
Jörgensdóttir á Sauðárkróki sem gefa okkur dásemdar
uppskriftir og hafa tómatsúpu f forrétt, folaldafille í aðalrétt
og eftirrétturinn, frönsk súkkulaðikaka, fullkomnar
máltíðina.
Petra og Hörður skora á Óin tvö frá Vopnafirði þau Ólínu
Valdísi Rúnarsdóttur og Ólaf Smára Sævarsson að koma með
næstu uppskrift.
FORRÉTTUR
Tómatsúpa
með rcekjum
Tóró Meksikansk tomatsuppe
frá Guerrero
Ca. ‘A dlferskjur
1. petí rjómi
Rœkjur (eftirsmekk)
Gerið súpuna eítir leiðbeiningum
á pakka, en samt aðeins minna
af vökva heldur en gefíð er upp.
Setjið rjómann út í og smátt
saxaðar ferskjurnar, síðan eru
rækjurnar settar út í í lokin, bara
síðustu 2 mínúturnar.
Gott er að bera fram með þessu
spelt smábrauð frá Hatting.
AÐALRETTUR
Folaldafille með
gráðostasveppasósu
6- 700gr. folaldafílle
Cajun barbecue
(Pottagaldrar)
1 stk. laukur
100-150gr. sveppir
1 matreiðslurjómi
2-3 msk. gráðostur
2-3 tsk. engifer
2-3 tsk. rifsberjagel
Salt ogpipar.
Kryddið folaldavöðvann með
Cajun barbecue kryddi, setjið
vöðvann í álpappír og inn í
ofn í 30 mín. við 180°C. Gott
er að láta vöðvann standa í
álpappírnum á borðinu í 10
mín. Skerið laukinn og sveppina
niður og steikið á pönnu, hellið
síðan matreiðslurjómanum út í.
Síðan er gráðosturinn, engifer og
rifsberjagelið sett í. Salt og pipar
eftir smekk. Sneiðið vöðvann
niður í eldfast mót og hellið
sósunni yfir og berið fram með
kartöflum og fersku salati.
EFT/RRÉTTUR
Frönsk
súkkulaðikaka
m/karamellukremi
2 dl. sykur
200gr. smjör
200gr. suðusúkkulaði
1 dl. hveiti
4 stk. Egg
Þeytið eggin og sykurinn vel
saman. Bræðið smjörið og súkku-
laðið saman við vægan hita í potti.
Blandið hveiti saman við eggin og
sykurinn. Bætið í lokin bræddu
súkkulaðinu og smjörinu varlega
saman. Bakist í vel smurðu formi
við 170°CÍ30 mín.
Karamellukrem:
1 poki Góu rjómakúlur
1 dl. rjómi
Rjómakúlurnar eru bræddar í
rjómanum við vægan hita, látið
kólna aðeins áður en því er hellt
yfir kökuna.
Gott er að hafa jarðarber og rjóma
með kökunni.
Verði ykkur að góðu.
Jólavaka á Hofsósi
Margrét Eir syngur á
Jólavöku á Hofsósi
Jólavaka Grunnskólans
á Hofsósi 2009 verður
haldin í Félagsheimilinu
Höfðaborg fimmtudaginn
17. desember kl. 21:00.
Jólavakan hefur verið fastur
liður á aðventunni undanfarin
ár. Fyrsta Jólavakan var
haldin árið 1997 og var það
Hlín Bolladóttir sem fékk
þessa ágætu hugmynd ásamt
nemendum við skólann. Þessi
hefð hefur svo haldist í öll
þessi ár og finnst mörgum
Jólavakan vera ómissandi hluti
aðventunnar. Margir hafa lagt
leið sína þangað enda mildð
lagt í kvöldið og það veglegt í
alla staði.
Á Jólavöku er alltaf ræðu-
maður sem flytur hátíðarræðu
og hafa margir góðir gestir
verið fengnir til þess. Þar má
nefna, Agnar á MikJabæ,
Björgu Baldursdóttur, Sr.
Hjört Pálsson, Jón Hall
Ingólfsson, Hlín Bolladóttur
og Jón Aðalstein Baldvinsson.
Jólavaka 2008, stúlkur úr skólanum syngja fyrir Jólavökugesti.
Jólavakan 2008, tónlistarfólk kvöldsins voru Kristjana Arngrimsdóttir og Kristján Hjartarson frá
Tjörn í Svarfaöardal.
Ræðumaður hefur þá gjarnan
verið með jólahugleiðingu,
gamlar minningar eða
skemmtilega frásögn.
Einnig hefur verið reynt
að leggja mildð upp úr
tónlistaratriðum á Jólavökum
í gegnum árin og höfum við
fengið til okkar fjölbreytt og
hæfileikaríkt tónlistarfólk,
og má þá m.a. nefna Pálma
Gunnarsson, Kammerkór
Skagafjarðar, Baldvin Baldvins-
son, Kristjönu Arngrímsdóttur,
Alexöndru Chernyshovu,
Önnu Sigríði Helgadóttur,
Óskar Pétursson, Diddú og
Jóhann Má Jóhannsson.
Á Jólavöku verða svo ýmis
önnur skemmtileg atriði og
eru þau öll frá nemendum við
grunnskólann. Nemendur sem
hafa stundað tónlistarnám taka
noldcur lög og flytja einnig ljóð
eða sögur sem þeir hafa samið
í jólatjáningu í skólanum og
hefur það oft vakið milda
luldcu.
í ár verður Jólavakan
með hefðbundnu sniði,
aðalræðumaður kvöldsins er
Sonja Sif Jóhannsdóttir frá
Hofi, sem er fyrrum nemandi
við skólann og starfar sem
forvarnarfulltrúi TM á
Akureyri.
Tónlistaratriði um kvöldið
verða eins og áður segir í
höndum nemenda skólans
og svo fáum við til olckar
Frostrósasöngkonuna Margréti
Eir sem syngur fyrir okkur
nolckur jólalög og með henni
kemur undirleikarinn Börkur
Hrafn.
Jólavakan er þáttur í fjár-
öflun nemendafélagsins. Til
að gera þetta mögulegt á
ári hverju höfum við góða
balchjarla ásamt mörgu fólki
sem leggur okkur lið og má þar
nefna Ferðaþjónustuna á Vatni,
Önnu Kristínu Jónsdóttur og
Einar Þorvaldson kennara við
Tónlistarskólann sem hafa alltaf
verið okkur innan handar.
Að þessu sinni styrkja
Sparisjóður Skagaljarðar og
Flugfélagið Ernir olckur einnig.
Nemendur skólans vonast til
þess að sjá sem flesta á Jólavöku
að þessu sinni.
Texti og myndir:
Grunnskólinn austan Vatna