Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1918, Blaðsíða 5
For mál i.
Avant-propos.
Á undan kosningunum til alþingis í ágúst og október 1916
sendi hagstofan út til allra yfirkjörstjórna á landinu eyðublöð undir
skjTrslur um atkvæðagreiðsluna, sem sendast áttu áfram til undirkjör-
sljórna og útfyllast af þeim. Hefði mátt ætla, að það hefði verið
iljótgert, þar sem um jafneinfaldar skýrslur var að ræða, að skýra
frá tölu kjósenda á kjörskrá og hve margir þeirra hefðu greitt at-
kvæði á kjörfundi eða brjeflega fyrir kjörfund og hvort eða hve
margir utanhreppsmenn hefðu greitt atkvæði. Hefði legið næst að
gera skýrsluna á kjördegi og afgreiða hana um leið og kjörgögnin
til yfirkjörstjórnar, enda var svo gert í allmörgum hreppum, en
víðast fórst það samt fyrir, og dróst um lengri eða skemri tíma,
og var ár liðið frá kosningunum, er skýrslur komu úr síðustu hrepp-
unum, eftir að hagstofan hafði gengið eftir þeim oftar en einu sinni.
Úr sumum lireppum var skjrrslunum einnig ábótavant, svo að senda
varð þær aftur til leiðrjettingar eða skrifa eftir frekari upplýsingum
og leið þá oft á alllöngu þar tit þær komust í lag. Af þessu mun
það augljóst, að útkoma skýrslna þessara hefur lilotið að dragast tölu-
vert lengur heldur en húast hefði mátt við.
Á undan kjördæmakosningunum i október 1916 sendi hagstof-
an líka yfirkjörstjórnunum eyðublað undir skýrslu um kosningaúr-
slitin, sem þær áttu sjálfar að útfylla, en þótt skýrslur þessar væru
með öllu vandalausar, var það samt ekki fyr en 7 mánuðum eftir
kosninguna og hagstofan hafði fengið eyðublöðin endursend útfylt frá
öllum yfirkjörstjórnunum.
Skýrslur þessar eru í liku sniði eins og skýrslur þær, sem hag-
stofan gaf út um alþingiskosningarnar 1908—1914, en þó töluvert fyllri,
sem að nokkru leyti stafar aí því, að kosningalögunum hefur verið
breytt. Þannig sjest nú á skýrslunum kjósendatala og kosningahlut-
taka karla og kvenna sjer í lagi, live margir hafa kosið brjeflega
fyrir kjörfund og hve margir hafa kosið utan þess hrepps þar sem
þeir slóðu á kjörskrá. í þetta skifti hefur lika frambjóðendunum