Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1918, Page 12
10
Alþingiskosningar 1916
Síðan 1874 hefur hefur kosningahluttakan verið:
1874 Á Öllll landinu . . . . 19.6°/o 1902 ... Þar sem atkvæða- greiðsla íór fram Á öllu landinu 52.g°/o
1880 .... 24.7— 1903 .. 53.4—
1886 .... 30.c- 1908... '... 75.7"/o 72.4—
1892 .... 30.5— 1911... 78.4- 78.4—
1894 .... 26.4- 1914... 70.o— 55.8—
1900 ►U 00 T 1916... 52.6— 49.2-
Kosningahluttakan við síðustu kosningarnar er tiltölulega miklu
minni heldur en við 3 næstu kosningarnar á undan síðan farið var
að kjósa skriflega i hverjum hreppi. Áður var kosið munnlega á
einum stað í hverju kjördæmi og var þá auðvitað kosningahluttak-
an töluvert minni. Þó var hluttakan í síðustu munnlegu kosningun-
um, 1903, tiltölulega heldur meiri, og í hinum næstsíðustu, 1902,
jafnmikil eins og við kosningarnar haustið 1916.
Þegar litið er sjerstaklega á hluttöku karla og kvenna í kosn-
ingunum, þá sjest það, að það stafar næstum eingöngu frá kven-
fólkinu, að kosningahluttakan hefur orðið svo iniklu minni við
kosningarnar haustið 1916 heldur en við undanfarandi kosningar.
Af karlmönnum greiddu atkvæði 10 593 eða 69.i% af karlkjósendum
i þeim kjördæmum, sem kosning fór fram i, og er það tiltölulega
mjög litlu minni hluttaka heldur en í kosningunum 1914, en af
kvenfólki greiddu atkvæði að eins 3 437 eða 30.2% af kvenkjósend-
um í þeim kjördæmum, sem kosning fór fram í, og er það ekki
nærri hálf lilutlaka á við karlmenn.
Hvernig kosningahluttakan var í einstökum kjördæmum við
kosningarnar haustið 1916 sjest á 1. yfirlitstöflu (bls. 9). Mest var
kosningahluttakan á ísafirði (84.7%), en minst í Barðastrandarsýslu
(36.i%). Á ísafirði var kosningahluttakan heldur meiri heldur en
við næstu kosningar á undan, en í öllum öðrum kjördæmum var
hluttakan minni heldur en við kosningarnar 1914. Við kosningarnar
haustið 1916 var hluttaka karla mest í Vestur-Skaftafellssýslu (89.3%),
en minst í Barðastrandarsýslu (55.4%), en hluttaka kvenna var mest
á ísafirði (79.i%), en minst í Barðastrandarsýslu (12.5%). í eftir-
í'arandi töflu er kjördæmunum skift í flokka eftir kosningahluttök-
unni við 4 síðustu kosningarnar og auk þess eftir hluttöku karla og
kvenna við síðustu kosningarnar.