Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1924, Síða 8
6
Alþingiskosningar 1919—1923
Árið 1918 fóru ekki fram alþingiskosningar, en þá fór fram at-
kvæðagreiðsla um sambandslögin meðal allra alþingiskjósenda. Fram að
1903 (og að því ári meðtöldu) nemur kjósendatalan 9—10 °/o af íbúa-
tölu landsins. Með stjórnarskrárbreytingunni frá 1903 var aukaútsvars-
greiðslan, er kosningarrjettur var bundin við, færð niður í 4 kr. Var
kjósendatalan síðan 14—15 °/o árin 1908—14. Með stjórnarskrárbreyt-
ingunni 1915 var aukaútsvarsgreiðsla afnumin sem skilyrði fyrir kosningar-
rjetti og konum og hjúum veittur smávaxandi kosningarrjettur. Kemst þá
kjósendatalan upp í nálega þriðjung landsmanna og smáhækkar síðan,
en með stjórnarskránni 1920 hækkar hún enn mjög mikið og vantar þá
ekki mikið á, að helmingur landsmanna sjeu kjósendur.
Þegar kjósendatölunni er deilt með tölu kosinna þingmanna, koma
á hvern þingmann 1220 kjósendur árið 1923, 937 árið 1919, 394 árið
1914, 260 árið 1903 og 206 árið 1874.
Tala kjósenda í hverju kjördæmi við kosningarnar 1919 og 1923
sjest á töflu I og II (bls. 26—27). Sjest þar, að kjósendatala kjördæmanna
er mjög misjöfn, enda kjósa sum einn þingmann, önnur tvo og eitt
(Reykjavík) fjóra. En þó tillit sje tekið til þingmannatölunnar í hverju
kjördæmi, verður samt mjög mishá kjósendatala, sem kemur á hvern
þingmann. Að baki sjer höfðu þingmennirnir 1923
færri en 800 kjósendur ............... 6 þingmenn
800—1000 — 7 —
1000—1200 — ................... 8 —
1200—1500 — 8 —
Yfir 1500 — 7
Minst kjósendatala á þingmann kemur á Seyðisfirði, 428, og þar
næst í Austur-Skaftafellssýslu, 587. Aftur á móti kemur mest kjósenda-
tala á þingmann í Reykjavík, 2222 á hvern, og þar næst í Suður-Þing-
eyjarsýslu, 1901. í Reykjavík eru 8889 kjósendur, sem senda 4 menn á
þing, en í 10 kjördæmum (Seyðisfirði, Austur-Skaftafellssýslu, Norður-
Múlasýslu, Norður-Þingeyjarsýslu, Strandasýslu, Vestur-Húnavatnssýslu,
Rangárvallasýslu, Vestur-Skaftafellssýslu, Mýrasýslu og Dalasýslu) eru
samtals 9107 kjósendur, sem senda 12 menn á þing.
2. Kosningahluttaka.
Participation des électeurs.
Við kosningarnar haustið 1919 greiddu alls atkvæði 14 463 manns
eða 45.4 °/o af allri kjósendatölunni á landinu þá, en við kosningarnar
haustið 1923 var tala greiddra atkvæða 31 146 eða 70.9 o/o af kjósenda-
tölunni þá. En aðgætandi er, að engin kosning fór fram í 9 kjördæmum