Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1924, Page 16

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1924, Page 16
14 Alþingiskosningar 1919—1923 stofunni og hefur því verið athugað, hvaða ástæður væru tilgreindar á þeim. Þær eru þessar: Fjarvera utansveitar: Atkv. greidd heima á undan burtförinni ........ 554 Atkv. greidd utansveitar .......................... 630 1 184 EIIi .............................................. 1 082 Sjóndepra ............................................. 25 Veikindi eða lasleiki ............................. 1 253 2 360 Sjúkrahjúkrun ......................................... 36 Annríki.......................................... . ..__40 76 Óupplíst ................................................. 429 Samtals .. 4 049 Þessar tölur sýna, að fjölgun brjeflegu atkvæðanna stafar aðallega af heimildinni til að kjósa heima vegna elli eða vanheilsu, enda þótt líka sje nokkru meir en áður um brjefleg atkvæði vegna fjarveru utansveitar. í töflu V (bls. 36—37) er yfirlit yfir ástæðurnar til brjeflegrar atkvæða- greiðslu við kosningarnar 1923 í hverju kjördæmi. I töflu I og II (bls. 26—27) er sýnt, hve mjög brjefleg atkvæði voru greidd í hverju kjördæmi við kosningarnar 1919 og 1923 og í töflu IV (bls. 29—35) hvernig þau skiftast niður á hreppana. En í 3. yfirliti (bls. 13) er samanburður á því, hve mörg koma á hvert 100 atkvæða í hverju kjördæmi. Bæði árin er Isafjarðarkaupstaður hæstur. 1919 hefur rúml. Vío greiddra atkvæða þar verið brjefleg atkvæði (10.9 °/o), en 1923 rúml. ty5 (21.7 o/o). Aðeins í 5 kjördæmum hafa brjefleg atkvæði 1923 verið færri en tyio greiddra atkvæða, tiltölulega fæst í Barðastrandar- sýslu (1.6 o/o) og þar næst í Vestur-Húnavatnssýslu (5.1 °/o). Við kosningarnar 1919 voru miklu færri konur en karlar, sem kusu brjeflega. Alls kusu þannig 301 karlmenn eða 3.0 °/o af öllum karlmönn- um, sem atkvæði greiddu við kosningarnar, en aðeins 80 konur eða 1.8 °/o af konum, sem atkvæði greiddu. Aftur á móti hafa miklu fleiri konur en karlar greitt atkvæði brjeflega 1923. Greiddu þá brjeflega atkvæði 1409 karlar eða 8.7 °/o af öllum karlmönnum, sem atkvæði greiddu, en 2 640 konur eða 17.6 °/o af öllum konum, sem atkvæði greiddu. Heimakosning vegna elli og vanheilsu hefur verið miklu tíðari meðal kvenfólksins heldur en meðal karlmannanna, en aftur á móti er töluvert meira um brjeflegar kosningar vegna fjarveru utansveitar meðal karla en kvenna. Af brjef- legum atkvæðum karla stafaði meir en helmingurinn af fjarveru utan- sveitar, en af brjeflegum atkvæðum kvenna stafaði nálega 3/4 hlutar af elli og vanheilsu. Hve mikið brjeflegar heimakosningar voru notaðar við kosningarnar 1923 gaf mönnum ástæðu til að ætla, að þær hefðu verið nokkuð mis-

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.