Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1924, Síða 17

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1924, Síða 17
Alþingiskosningar 1919—1923 15 brúkaðar. Á nokkrum fylgibrjefum hafa menn jafnvel tilgreint sem ástæðu annríki, sem alls ekki er gild ástæða samkvæmt lögunum, en það eru líka allmiklar líkur til, að ýmsir af þeim, sem tilgreint hafa elli eða las- leika sem ástæðu, hafi þó verið fullferðafærir og því ekki átt að kjósa á þennan hátt. En við heimakosningar er miklu örðugra að tryggja það, að kosningin sje leynileg og að kjósandinn sje sjálfráður um atkvæði sitt. Af þessum ástæðum var líka heimildin til að kjósa heima vegna elli og lasleika numin aftur úr lögum á þinginu 1924. 5. Ógild atkvæði. Bulletins nuls. Síðan alþingiskosningarnar urðu skriflegar hafa ógild atkvæði orðið: 1908 ... .. . 333 eÖa 3.9 % 1916 ... 680 eöa 4.8 % 1911 ..., . . . 438 — 4.3 — 1919 .... .. 429 — 3.0 — 1914 ..., . . . 135 — l.s — 1923 ..., , .. 784 — 2.5 — Nokkrir kjósendur hafa skilað auðum seðli og því sjálfir ætlast til, að atkvæði sitt yrði ónýtt. Við kosningarner haustið 1919 voru 31 at- kvæðaseðlar auðir eða 7.2 °/o af þeim seðlum, sem ógildir voru metnir, en við kosningar 1923 voru þeir 57 eða 7.3 °/o. Allur þorri ógildu seðl- anna er aftur á móti svo til kominn, að kjósendunum hefur mistekist að gera atkvæðaseðil sinn svo úr garði sem kosningalögin mæla fyrir. Mest hefur verið um ógild atkvæði við kosningarnar 1916, sem mun stafa af því, að þá fór fram samtímis atkvæðagreiðsla um þegnskylduvinnu með annari aðferð og hefur það vilt ýmsa. Hve mörg atkvæði urðu ógild í hverju kjördæmi 1919 og 1923 sjest á töflu VI og VII (bls. 38—48), en á 3. yfirlitstöflu (bls. 13) er sýnt, hve miklum hluta þau námu af öllum greiddum atkvæðum í kjör- dæminu. Bæði árin voru þau tiltölulega flest í Suður-Múlasýslu (4.9 °/o árið 1919 og7.4 o/o árið 1923), en tiltölulega fæst 1919 í Skagafjarðar- sýslu (1.3 °/o) og 1923 í Reykjavík (0.5 °/o). 6. Frambjóðendur og þingmenn. Candidats et représentants élus. Við kosningarnar 1919 voru alls í kjöri 68 frambjóðendur, en 77 árið 1923. 1919 var aðeins einn frambjóðandi í 9 kjördæmum, svo að kosning fór þar ekki fram, en 1923 var svo ástatt í 3 kjördæmum (Borgarfjarðarsýslu, Mýrasýslu og Norður-Þingeyjarsýslu). í flestum kjör- dæmum hefur frambjóðendatalan verið tvöföld á við þingmannssæti (í 10

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.