Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1929, Blaðsíða 9
Alþingiskosningar 1926—1927
7
Á öllu Þar sem afkvæða* Á öllu
landinu greiösla fór fram landinu
1874 .... 1908 .. 75.7 o/o 72.4 o/o
1880 .... . . . 24.7 — 1911 ... 78.4 — 78.4 —
1886 .... . . . 30.6 — 1914 ... 70 o — 55.8 —
1892 .... . . . 30.5 — 1916 ... 52 6 — 49.2 —
1894 .... .. . 26.4 — 1918 ... .... 43.8 — 43.8 —
1900 .... ... 48.7 — 1919 ... .... 58.7 - 45.4 —
1902 .... . . . 52.6 — 1923 ... .... 75.6 — 70.9 —
1903 .... ... 53.4 — 1927 ... .... 71.5 — 71.5 —
Árið 1908 var fyrst farið að kjósa skriflega í hverjum hr<
áður var kosið munnlega á einum stað í hverju kjördæmi. Var þá auð-
vitað erfiðara að sækja kjörfund og kosningahluttaka því fremur lítil. Þó
kemst hún upp í um og yfir helming kjósenda við síðustu munnlegu
kosningarnar um og eftir aldamótin. En þegar farið er að kjósa í hverj-
um hreppi vex hluttakan mikið og mest var hún 78.4 °/o við kosningarn-
ar 1911. Síðan hefur hún verið minni, einkum 1916, er kvenfólkið bættist
við í kjósendatöluna, og 1918, er atkvæðagreiðsla fór fram um sambands-
lögin. Þá varð hluttakan aðeins 43.8 °/o af kjósendatölunni og stafaði það
af því, hve mótstaðan gegn þeim var lítil. Með lögum 1923 var leyft að
kjósa brjeflega heima hjá sjer vegna elli og vanheilsu, en sú heimild
var feld burt árið eftir. Aftur á móti var með lögum 1925 leyft að hafa
fleiri en einn kjörstað í hreppi og hefur sú heimild verið notuð á stöku
stað. Við kosningarnar 1927 greiddu að vísu atkvæði nokkru fleiri kjós-
endur tiltölulega heldur en við næstu kjördæmakosningar á undan, 1923,
en þá fór eigi fram atkvæðagreiðsla í 3 kjördæmum. I hinum kjördæm-
unum, sem atkvæðagreiðsla fór fram í, var kosningahluttakan aftur á
móti töluvert meiri 1923 heldur en 1927, eða 75.6 °/o á móts við 71.5 °/o.
Þegar litið er sjerstaklega á hluttöku karla og kvenna í kosning-
unum, þá sjest, að hluttaka kvenna er miklu minni en hluttaka karla.
Við kosningarnar haustið 1927 greiddu atkvæði 81.5 °/o af karlkjósend-
um, en ekki nema 62.5 °/o af kvenkjósendum. Við kosningarnar 1923
voru bæði þessi hlutföll hærri í þeim kjördæmum, sem kosning fór fram
í, hluttaka karlkjósenda 83.7 °/o og kvenkjósenda 68.4 °/o. Afturförin er
því töluvert meiri meðal kvenna en karla.
I töflu I (bls. 21) sjest, hve margir af kjósendum hvers kjördæmis
hafa greitt atkvæði við kosningarnar 1927. Hve mikil kosningahluttakan
var hlutfallslega í einstökum kjördæmum sjest á 1. yfirlitstöflu (bls. 8).
Mest var kosningahluttakan á ísafirði (92.6 °/o) og þar næst á Seyðis-
firði (91.5 °/o), en minst var hún í Suður-Þingeyjarsýslu (59.6 °/o). Mesta
kosningahluttaka karla var á Seyðisfirði (97.6 °/o), en kvenna á ísafirði
(90.6 o/o), en minst kosningahluttaka bæði karla og kvenna var í Suður-