Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1929, Qupperneq 14
12
Alþingiskosningar 1926—1927
6. Frambjóðendur og þingmenn.
Candidafs et représentants élus.
Við kosningarnar 1927 voru alls í kjöri 91 frambjóðendur. Eru það
miklu fleiri frambjóðendur en nokkru sinni áður, enda fór nú kosning
fram í öllum kjördæmum. í 16 kjördæmum var frambjóðendatalan
tvöföld á við þingmannssæti, í 1 kjördæmi tæpl. þreföld, í 8 kjördæm-
um þreföld og í 1 kjördæmi fjórföld (Barðastrandarsvslu).
Af 36 kjördæmaþingmönnum, sem sáfu á alþingi 1926, buðu 33
sig fram.aftur í sama kjördæmi, og voru 27 þeirra endurkosnir, 1 bauð
sig fram í öðru kjördæmi og náði hann ekki kosningu, en aðeins 2
drógu sig alveg í hlje. Við kosningarnar 1927 voru kosnir 9 nýir þing-
menn. Af þeim höfðu 6 aldrei setið á þingi fyr, en 3 höfðu verið þing-
menn áður, þótt ekki hefðu þeir átt sæti á næsta þingi á undan kosn-
ingunni (Sigurður Eggerz, Lárus Helgason og Gunnar Sigurðsson).
Eftirfarandi yfirlit sýnir, hve margir af frambjóðendum við 4 síð-
ustu kosningarnar bjuggu í kjördæminu, sem þeir buðu sig fram í, og
hve margir utan þess:
Frambjóöendur alls Kosnir
1916 1919 1923 1927 1916 1919 1923 1927
Innanhjeraðs . . 61 53 51 57 25 27 24 24
Utanhjeraðs ... 16 15 26 34 9 7 12 12
Samtals 77 68 77 91 34 34 36 36
Við kosningarnar 1927 hafa óvenjulega margir utanhjeraðsmenn
boðið sig fram. Meiri hluti þeirra, 23 af 35, var búsettur í Reykjavík,
og náðu 9 þeirra kosningu. Rjettur þriðjungur þeirra, sem kosningu
náðu við tvær síðustu kosningarnar, var búsettur utan kjördæmisins.
Eftir atvinnu skiftust frambjóðendur og þingmenn þannig:
Frambjóðendur Þingmenn
1916 1919 1923 1927 1916 1919 1923 1927
Bændur 27 28 30 29 13 12 14 16
Sjávarútvegsmenn 2 2 3 4 1 » 3 4
Iðnaðarmenn 2 2 1 3 )) » 1 »
Verslunar- og bankamenn 9 9 11 9 4 8 5 7
Verkamenn og verklýðsfjelaga starfsmenn » )) )) 3 » )) )) 1
Blaðamenn og embættislausir mentamenn 5 5 10 8 3 3 5 2
Embættis- og sýslunarmenn 32 22 22 35 13 11 8 6
Samtals 77 68 77 91 34 34 36 36
Bændur og embættismenn eru fjölmennastir bæði meðal frambjóð-
enda og þingmanna. Þó hefur embættismönnum fækkað mjög meðal
þingmanna upp á síðkastið. Við kosningarnar 1927 náðu aðeins 6 kosn-
ingu af 35 frambjóðendum. Meðal frambjóðenda í þeim flokki voru 10