Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1929, Page 15
Alþingiskosningar 1926—1927
13
kennarar, en aðeins 1 af þeim náði kosningu, og 6 prestar, en enginn
þeirra náði kosningu.
í töflu V (bls. 31—36) er getið um fæðingarár og dag hvers fram-
bjóðanda við kosningarnar 1927. Eftir aldri skiftust þeir þannig:
Fram-
bjóöendur Kosnlr
25—29 ára ......... 2 »
30—39 — .......... 28 12
40—49 — .......... 28 7
Fram-
bjóðendur Kosnir
50-59 ára ......... 25 12
60-69 — ............ 8 _5
Samtals .. 91 36
Elstur frambjóðendanna var Björn Kristjánsson, 69 ára, og náði
hann kosningu, en yngstur var sjera Sigurður Einarsson, 28 ára, og
náði hann ekki kosningu. Yngstur þeirra, sem kosnir voru, var Asgeir
Ásgeirsson, 33 ára. Meðalaldur allra frambjóðenda við kosningarnar var
46.0 ár, en meðalaldur þeirra, sem kosnir voru, heldur hærri, 47.4 ár.
Aftan við nöfn frambjóðendanna í töflu V (bls. 31—36) eru bókstafir,
er tákna til hvaða flokks þeir töldust, þegar kosningin fór fram. Fyrir
landskjör 1926 breytti Sjálfstæðisflokkurinn um nafn og tók upp nafnið
Frjálslyndi flokkurinn. Eftirfarandi yfirlit sýnir, í hve mörgum kjördæm-
um hver flokkur hafði frambjóðendur við kosningarnar 1927 og hve
marga, hversu margir af þeim náðu kosningu og hversu mörg atkvæði
fjellu á frambjóðendur hvers flokks. Atkvæðin eru talin þannig í tveggja
manna kjördæmunum, að atkvæðatala hvers frambjóðanda er helminguð.
Þau atkvæði, sem fallið hafa á frambjóðendur sinn úr hvorum flokki,
teljast því að hálfu til hvors flokksins.
í hve mörgum Tala Atkvæðatala
kjördæmum fram- af gildum
frambjóöendur bjóöenda Kosnir alls atkvæðum
íhaldsflokkur (I) 24 34 13 13 6I6V2 42.5 o/o
Framsóknarftohkur (F) 20 26 17 9 532'/2 29.8 —
Alþýðuflokkur (A) 12 18 4 6 09 7'/2 19.1 —
Frjálslyndi flokkurinn (Fl) 6 8 1 1 858 5.8 —
Utan flokka (U) 4 5 1 9041/2 2.8 —
Samtals . 36 91 36 32 009 lOO.o —
íhaldsflokkurinn hafði frambjóðendur í öllum kjördæmum, nema
ísafjarðarkaupstað og Suður-Þingeyjarsýslu, en í þeim báðum voru í
kjöri utanflokksmenn, sem nánast voru studdir af Ihaldsflokknum. Fram-
sóknarflokkurinn hafði frambjóðendur í öllum sveitakjördæmunum, nema
Norður-ísafjarðarsýslu, en í engum kaupstaðanna. Alþýðuflokkurinn hafði
aftur á móti frambjóðendur í öllum kaupstöðunum, sem eru sjerstök
kjördæmi, og auk þess í 7 öðrum kjördæmum. Framsóknarflokkurinn
fjekk tiltölulega fleiri þingmenn knsna heldur en svaraði til hans hluta