Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1929, Page 16

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1929, Page 16
14 Alþingiskosningar 1926—1927 af allri atkvæðatölunni, en hinir flokkarnir færri. Ef þingmennirnir hefðu skifst á flokkana í rjettu hlutfalli við atkvæðatölu hvers flokks, þá hefði íhaldsflokkurinn fengið 15, Framsóknarflokkurinn 11, Alþýðuflokkurinn 7, Frjálslyndi flokkurinn 2 og utan flokka hefði orðið 1. Arið 1926 fóru fram aukakosningar í 4 kjördæmum og er skýrt frá þeim í töflu VI (bls. 37—38). í Gullbringu- og Kjósarsýslu var kosinn einn þingmaður 9. janúar 1926 vegna þess að Ágúst Flygenring lagði niður þingmensku sakir veikinda, en í 3 kjördæmum fór fram kosning 23. október sama ár, samhliða síðari landskosningunni það ár, í Reykja- vík á tveim þingmönnum í stað ]óns Þorlákssonar og Jóns Baldvinsson- ar, sem urðu landskjörnir þingmenn við landskjörið um sumarið, í Dala- sýslu vegna láts Bjarna ]ónssonar frá Vogi og í Rangárvallasýslu vegna láts sjera Eggerts Pálssonar. B. Landskosningar 1. júlí og 23. okt. 1926. Élections d’aprés le nombre proportionnel le 1 juillet et 23 octobre 1926. 1. Landskosningarnar. L'élections. 1926 var útrunnið kjörtímabil annars helmings hinna landskjörnu þingmanna og fóru því fram landskosningar á 3 þingmönnum 1. júlí 1926. En um vorið 1926 dó ]ón Magnússon ráðherra, er var einn hinna lands- kjörnu þingmanna, sem ekki áttu að fara frá, og með því að varamaður sá, sem koma hefði átt í hans stað, Sigurður Sigurðsson ráðunautur, var dáinn áður, fór fram aukalandskosning 23. október sama ár til þess að kjósa einn þingmann í stað hans. 2. Tala kjósenda. Nombre des électeurs. Kosningarrjettur til landskosninga er bundinn sömu skilyrðum sem kosningarrjettur til kjördæmakosninga, nema aldurstakmarkið er 10 ár- um hærra við landskosningarnar, eða 35 ár. Tala kjósenda við landskjör hefur verið þessi síðan þær kosningar hófust. Af íbúa- Kjóscndur fölu 24 189 26.8 % 29 094 30.2 — Af íbúa- Kjósendur tölu 30 767 30.5 o/o 31 422 31.1 — 1916 1922 1926 júlí 1926 okt.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.