Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1932, Síða 21
Alþingiskosningar 1930—1931
19
1916 ........ 44 eða 0.7% 1926 okt. ... 243 eða 1.5%
1922 ...... 168 — 1.4— 1930 ........ 149 — 0.6 —
1926 júlí ... 153 — l.i —
76 atkvæðaseðlar voru auðir 1930 eða rúmlega helmingur ógildu
seðlanna.
6. Frambjóðendur og þingmenn.
Candidais et représentanis élus.
Við landskosningarnar sumarið 1930 komu fram 3 framboðslisfar.
Voru 6 nöfn á hverjum, svo að alls voru 18 nöfn á öllum listunum, þar
á meðal 2 konur.
Við kosninguna skiftust gildu atkvæðin þannig milli listanna:
Sjálfstæðisflokkur ............. 11671 atkv. eða 48.3%
Framsóknarflokkur ............ 7 585 — — 31.4 —
Aiþýðuflokkur ................ 4 893 — — 20.3 —
Samtals 24 149 atkv. eða 100.0 %
Sjálfstæðisflokkur kom að tveim þingmönnum og varamönnum,
Framsóknarflokkur einum þingmanni og varamanni, en Alþýðuflokkur
engum. I töflu IV (bls. 29) er skýrt frá, hverjir voru frambjóðendur og
hverjir náðu kosningu.
Einn hinna kjörnu þingmanna hafði átt sæti á næsta þingi á undan
kosningunni sem landskjörinn, en tveir voru nýir og sömuleiðis allir
varamennirnir. Allir þingmennirnir voru búsettir í Reykjavík, en tveir af
varamönnunum voru búsettir í Rangárvallasýslu, en einn í Þingeyjarsýslu.
Meðalaldur þingmanna og varamanna var 45.7 ár.