Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1934, Blaðsíða 7
Inngangur
Introduction.
A. Kjördæmakosningar 16. júlí 1933.
Elections générales des circonscriptions le 16 juillet 1933.
1. Tala kjósenda.
Nombre des électeurs.
Við kjördæmakosningarnar 16. júlí 1933 var tala kjósenda á kjör-
skrá 52 465. Var það 46.7 °/o af landsmönnum. Síðan alþingi fékk lög-
gjafarvald hefur tala kjósenda við almennar kosningar verið svo sem
hér segir:
Kjósendur Af íbúatölu Kjósendur Af íbúatölu
1874 ... ... 6 183 8.8 o/o 1911 ... .. 13 136 15.4 o/o
1880 ... ... 6 557 9.1 — 1914 ... .. 13 400 15.2 —
1886 ... ... 6 648 9.2 — 1916 ... .. 28 529 31.7 —
1892 .. ... 6 841 9.5 — 1918 ... .. 31 143 33.7 —
1894 .. ... 6 733 9.2 — 1919 . . .. 31 870 34.5 —
1900 ... ... 7 329 9.4 — 1923 ... . . 43 932 45.2 —
1902 .. . . . 7 539 9.5 — 1927 ... . . 46 047 44.9 —
1903 .. . . . 7 786 9.8 — 1931 ... .. 50 617 46.4 —
1908 . . .. . 11 726 14.1 — 1933 ... . . 52 465 46 7 —
Árið 1918 fóru ekki fram alþingiskosningar, en þá fór fram at-
kvæðagreiðsla um sambandslögin meðal allra alþingiskjósenda. Fram að
1903 (og að því ári meðtöldu) nemur kjósendatalan 9—10 °/o af íbúa-
tölu landsins. Með stjórnarskrárbreytingunni frá 1903 var aukaútsvars-
greiðslan, er kosningarréttur var bundinn við, færð niður í 4 kr. Var
kjósendatalan síðan 14—15 °/o árin 1908 — 14. Með stjórnarskrárbreyting-
unni 1915 var aukaútsvarsgreiðsla afnumin sem skilyrði fyrir kosningar-
rétti og konum og hjúum veittur smávaxandi kosningarréttur, þannig að
aldurstakmark þeirra var í fyrstu 40 ár, en lækkaði svo á hverju ári
um eitt ár. Við þetta kemst kjósendatalan upp úr 30 ö/o og smáhækkar
síðan eftir því sem aldurstakmark þessara nýju kjósenda lækkar. En með
stjórnarskránni 1920 var hið sérstaka aldurstakmark þessara kjósenda