Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1934, Page 44

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1934, Page 44
Hagstofa Islands gefur út eftirfarandi rit: I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ítarlegar skýrslur um þau efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í sjálf- stæðum heftum og fást þau keypt einstök. Af Hagskýrslunum er út komið: Verzlunarskýrslur 1912—1931. Búnaðarskýrslur 1912—1931. Alþingiskosningar 1908—1933. Fiskiskýrslur og hlunninda 1912—1931. íslenzk mannanöfn 1. des. 1910. Barnafræðsla 1909—1920. Þjóðaratkvæðagreiðsla um sambandslög 1918. Mannfjöldaskýrslur 1911—'1930. Skýrslur um skipakomur 1913—1917. Manntal á íslandi 1. des. 1920. Sparisjóðir 1911 —1925. Dómsmálaskýrslur 1913—1925. Menn geta gerst áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa sjer beint til Hagsíofunnar. Áskriftargjald er 5 krónur um árið. II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um inn- flutning og útflutning, smásöluverð og ýmislegt fleira, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslunum. Ennfremur bráða- birgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma um ítarlegri skýrslur. Af Hagtíðindum eru komnir út 18 árgangar (1916—1933). Áskrift- argjald er 1 króna og 50 aurar um árið. III. Árbók Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim talfræði- upplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið sé mikið út í einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töflur með alþjóðlegum yfirlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg. 1930. Kostar 3 krónur. IV. Manntal á íslandi árið 1703 tekið að tilhlutun Árna Magnús- sonar og Páls Vídalín. Er það prentað í heild sinni og kemur út eitt hefti á ári. Komin eru út 10 hefti. Byrjað var á Gullbringu- sýslu og er komið alt Vestur- og Norðurland og Austurland suður í Suður-Múlasýslu. Hvert hefti kostar 3 krónur, en menn geta gerst áskrifendur að öllu ritinu og greiðisí þá hvert hefti við móttöku.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.