Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1934, Side 8

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1934, Side 8
6 Alþingiskosningar o. fl. 1933 alveg felt burtu og hækkaði þá kjósendatalan svo, að hún komst upp í hérumbil 45 °/o og hefur það hlutfall haldist síðan að heita má. En með stjórnarskrárbreytingunni 24. mars 1934 var aldurstakmarkið lækkað niður í 21 ár og sveitarlimum veittur kosningarréttur. Af kjósendatölunni 1933 voru 25170 eða 48.0 °/o karlar, en 27 295 eða 52.0 °/o konur. Koma 1084 kvenkjósendur á móts við hvert 1000 karlkjósenda. Er það meiri munur heldur en er á tölu allra karla og kvenna á landinu. Stafar það af því, að innan við kosningaraldur (25 ár) eru heldur fleiri karlar heldur en konur, en á kosningaraldri eru konur þeim mun fleiri heldur en karlar. Þegar kjósendatölunni er deilt með tölu kosinna þingmanna, koma á hvern þingmann 1457 kjósendur árið 1933, 1406 árið 1931, 1220 árið 1923, 937 árið 1919, 394 árið 1914, 260 árið 1903 og 206 árið 1874. Tala kjósenda í hverju kjördæmi við kosningarnar 1933 sést á töflu I (bls. 23). Þótt tillit sé tekið til þingmannatölunnar í hverju kjör- dæmi, verður samt mjög mishá kjósendatala, sem kemur á hvern þing- mann. Að baki sér höfðu þingmennirnir 1933 færri en 800 kjósendur....... 5 þingmenn 800—1000 — 7 — 1000-1500 — 12 — 1500-2000 — 5 — yfir 2000 — .....'.. 7 — Minst kjósendatala á þingmann kemur á Seyðisfirði, 466, og þar næst í Austur-Skaftafellssýslu 631. Aftur á móti kemur hæst kjósenda- tala á þingmann í Reykjavík, 3626 á hvern, og þar næst á Akureyri, 2223. 2. Kosningahluttalca. Participation des électeurs. Við kosningarnar sumarið 1933 greiddu alls atkvæði 36 772 manns eða 70.1 °/o af allri kjósendatölunni á landinu, en 71.2 °/o af kjósenda- tölunni í þeim kjördæmum, þar sem kosning fór fram. I þetta sinn fór atkvæðagreiðsla ekki fram í Strandasýslu, vegna þess að þar var aðeins einn frambjóðandi. Síðan 1874 hefur kosningahluttakan verið: Á öllu Á öllu landinu landinu 1874 . . . . ... 19.6 o/o 1894 .... . .. 26.4 o/o 1880 .... ... 24.7 - 1900 .... . . . 48.7 — 1886 .... . .. 30.6 — 1902 .... .. . 52.6 — 1892 .... . .. 30.5 — 1903 .... . . . 53.4 —

x

Hagskýrslur um kosningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.