Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1934, Side 8
6
Alþingiskosningar o. fl. 1933
alveg felt burtu og hækkaði þá kjósendatalan svo, að hún komst upp í
hérumbil 45 °/o og hefur það hlutfall haldist síðan að heita má. En með
stjórnarskrárbreytingunni 24. mars 1934 var aldurstakmarkið lækkað
niður í 21 ár og sveitarlimum veittur kosningarréttur.
Af kjósendatölunni 1933 voru 25170 eða 48.0 °/o karlar, en 27 295
eða 52.0 °/o konur. Koma 1084 kvenkjósendur á móts við hvert 1000
karlkjósenda. Er það meiri munur heldur en er á tölu allra karla og
kvenna á landinu. Stafar það af því, að innan við kosningaraldur (25
ár) eru heldur fleiri karlar heldur en konur, en á kosningaraldri eru
konur þeim mun fleiri heldur en karlar.
Þegar kjósendatölunni er deilt með tölu kosinna þingmanna, koma
á hvern þingmann 1457 kjósendur árið 1933, 1406 árið 1931, 1220 árið
1923, 937 árið 1919, 394 árið 1914, 260 árið 1903 og 206 árið 1874.
Tala kjósenda í hverju kjördæmi við kosningarnar 1933 sést á
töflu I (bls. 23). Þótt tillit sé tekið til þingmannatölunnar í hverju kjör-
dæmi, verður samt mjög mishá kjósendatala, sem kemur á hvern þing-
mann. Að baki sér höfðu þingmennirnir 1933
færri en 800 kjósendur....... 5 þingmenn
800—1000 — 7 —
1000-1500 — 12 —
1500-2000 — 5 —
yfir 2000 — .....'.. 7 —
Minst kjósendatala á þingmann kemur á Seyðisfirði, 466, og þar
næst í Austur-Skaftafellssýslu 631. Aftur á móti kemur hæst kjósenda-
tala á þingmann í Reykjavík, 3626 á hvern, og þar næst á Akureyri,
2223.
2. Kosningahluttalca.
Participation des électeurs.
Við kosningarnar sumarið 1933 greiddu alls atkvæði 36 772 manns
eða 70.1 °/o af allri kjósendatölunni á landinu, en 71.2 °/o af kjósenda-
tölunni í þeim kjördæmum, þar sem kosning fór fram. I þetta sinn fór
atkvæðagreiðsla ekki fram í Strandasýslu, vegna þess að þar var aðeins
einn frambjóðandi.
Síðan 1874 hefur kosningahluttakan verið:
Á öllu Á öllu
landinu landinu
1874 . . . . ... 19.6 o/o 1894 .... . .. 26.4 o/o
1880 .... ... 24.7 - 1900 .... . . . 48.7 —
1886 .... . .. 30.6 — 1902 .... .. . 52.6 —
1892 .... . .. 30.5 — 1903 .... . . . 53.4 —