Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1947, Side 11
Alþingískosningnr 1946
9
í töflu I (bls. 17) sést, hve niargir af kjósenduni hvers kjördæmis
hafa greitt atkvæði við kosningarnar 1946. Hve ínikil kosningahluttakan
var hlutfallslega í einstökum kjördæmum, sést á 1. yfirlitstöflu (hls. 7).
Mest var kosningahluttakan á ísafirði (93.i%), en minnst var hún í
Barðastrandarsýslu (81.o%). í Vestur-Skaftafellssýslu var kosningahlut-
taka karla hæst (96.7%), en kvenna á ísafirði (92.a%). Kosningahluttaka
karla var minnst i Borgarfjarðarsýslu (87.2%), en kvenna í Barða-
strandasýslu (73.»%). Hluttaka kvenna var minni í 24 kjördæmum (af 28)
heldur en hluttaka karla, þar sem hún var minnst.
í töflu II (bls. 18—20) er sýnt, hve margir kjósendur greiddu atkvæði
í hverjum hreppi á landinu 1946. Er þar hver kjósandi talinn í þeim
hreppi, þar sem hann stóð á kjörskrá, en ekki þar sem hann greiddi
atkvæði, ef hann liefur greitt atkvæði utanhrepps. Með þvi að bera tölu
greiddra atkvæða saman við kjósendatöluna í sömu töflu fæst kosninga-
hluttakan í hverjum hreppi. Ilvernig hrepparnir innan hvers kjördæmis
og á landinu í heild sinni, að meðlöldiun kaupstöðunum, skiptust eftir
kosningahluttöku, sést á 2. vfirlitstöflu (bls. 8). Voru flestir hreppar og
kaupstaðir með hluttöku milli 80 og 90 %, 116 eða 52 % af allri tölunni.
f þessum 7 hreppum var kosningahluttakan yfir 96%.
Fróðárhreppur í Snœfellsnessýslu .... 100.» °/o
Hólmavikurhreppur í Strandasý'slu . . . 97.2 —•
Bólstaðarhliðarhr. i A.-Húnavatnssýslu 96.» —
Kaldrananeslireppur i Strandasýslu . . 96.s —
Laugardalslireppur í Árnessýslu ... 96.6 —
Ásahreppur i Austur-Húnavatnssýslu . 96.i —■
Hvammshr. í Vestur-Skaftafellssýslu . . 96.» —
í 3 hreppum aðeins var hluttakan minni en 70%, i Reykhólahreppi
(68.g%), i Múlahreppi (64 .-,%) og Geiradalshreppi (62.7% ). Þeir eru allir
í Barðastrandarsýslu.
3. Atkvæðagreiðsla utanlireppsmanna.
Votants hors de teur district.
Samkvæmt kosningalögunum má kjörstjórn leyfa .manni, sem ckki
stendur á kjörskránni, að greiða atkvæði, ef hann sannar það með vott-
orði sýslumanns, að hann standi á annarri kjörskrá i kjördæminu og
að hann hafi afsalað sér þar kosningarrétti. Við kosningarnar 1946
greiddu 246 menn alkvæði i öðrum hreppi heldur en þar sem þeir stóðu
á kjörskrá, og var það 0.4% af þeim, sem atkvæði greiddu alls. Árið undan-
farnar kosningar hefur þetta hlutfall verið: