Bændablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 6

Bændablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. júní 2015 Málgagn bænda og landsbyggðar Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjöl margra annarra er tengjast land búnaði. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu. Árgangurinn kostar kr. 7.500 en sjötugir og eldri og lífeyrisþegar greiða kr. 3.750. Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300– Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 – Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Auglýsingastjóri: Erla H. Gunnarsdóttir ehg@bondi.is – Sími: 563 0303 – Frágangur fyrir prentun: Prentsnið. Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Landsprent og Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins. ISSN 1025-5621 LEIÐARINN Páll Jóhann Pálsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í atvinnu- veganefnd, leggur til að bændur taki í auknum mæli við því að rækta upp landið, í stað Landgræðslunnar. Þeim kunni að vera betur til þess treystandi en opinberri stofnun. Þetta er sannarlega athyglisvert mál því að með nýjum lögum geta bændur keypt land sem afsalað var til Landgræðslunnar fyrir áratugum, með því skilyrði að það verði tekið til landbúnaðarnota næstu tíu ár. Dæmi eru um að bændur hafi leitað eftir kaupum á landi frá Landgræðslunni við afar dræmar undirtektir. Skilyrðunum um landbúnaðarnot er ætlað stuðla að auknum búskap og að ekki verði hægt á þeim tíma að taka landið til annarra nota, eins og undir sumarhúsabyggð. Bændur hafa á liðnum áratugum lyft grettistaki í landgræðslu og oft í nánu samstarfi við Landgræðsluna. Eigi að síður hefur komið til harðskeyttra deilna milli Landgræðslunnar og bænda sem þegar nánar er skoðað ættu að vera óþarfar. Oft virðist ekki annað skorta á en að menn setjist niður og ræði málið í rólegheitunum og af skynsemi. Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjóri hefur m.a. gagnrýnt að bændur reki fé sitt á beit í Almenningum, en þeir hafa á móti bent á úrskurði ítölunefndar og yfirítölunefndar til að rökstyðja sitt mál. Sennilega eru átökin um Almenninga það mál sem hæst hefur farið en víðar hefur komið til orðaskaks á milli þessarar stofnunar og bænda. Sveinn hefur varað við þessum hugmyndum Páls Jóhanns og að með þeim sé hætt við að fjármunum, sem kostað hafi verið til uppgræðslu, verði kastað á glæ. Haraldur Benediktsson, bóndi og alþingismaður og fyrrverandi formaður Bændasamtaka Íslands, skrifar um þetta á fésbókarsíðu sinni. Haraldur segist taka undir orð Páls Jóhanns um breyttar áherslur í landgræðslumálum. „Það er löngu tímabært að rýna í starfsemi Landgræðslunnar og fara yfir umfang hennar. Hún hefur á löngum tíma náð góðum árangri í sínu starfi, en við þurfum að gera betur. Er endilega rétt sú áhersla að stofnunin sitji á miklum og verðmætum eignum?“ segir Haraldur m.a. í pistli sínum. Það hlýtur að vera eitt stærsta hagsmunamál bænda að vernda landið til að tryggja áframhaldandi búskap. Þar ættu hagsmunir landgræðslufólks og bænda líka að geta farið saman. /HKr. LOKAORÐIN Aldarafmæli kosningaréttar kvenna Þann 19. júní síðastliðinn var haldið upp á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna með myndarlegum hætti. Full ástæða var til þess að minnast þess enda var það stór áfangi í jafnréttisbaráttu þess tíma og rétt að óska öllum konum landsins til hamingju með þessi tímamót. Það vakti minni athygli að á sama tíma var einnig rýmkaður talsvert kosningaréttur eignalausra eða eignalítilla karlmanna, t.d.bænda, en áður höfðu þeir einir kosningarétt sem greiddu að lágmarki ákveðna skatta, gegndu ákveðnum embættum eða áttu eignir. Takmarkanirnar voru þó ekki liðnar undir lok því að eftir breytingarnar hafði tæpur þriðjungur þjóðarinnar kosningarétt (nú er hlutfallið 74%), en takmörkunum vegna stéttar eða stöðu var ekki að fullu aflétt fyrr en 1934. Þá voru engar konur á Búnaðarþingi Daginn fyrir hátíðahöldin var sýndur á RÚV þátturinn „Undarleg ósköp að vera kona“ sem byggður var upp á gömlum fréttabútum um jafnréttisbaráttuna á fyrri árum. Þátturinn hófst á viðtali við Jónas Jónsson sem þá var búnaðarmálastjóri og var hann inntur eftir stöðu kvenna á búnaðarþingi. Þá voru engar konur fulltrúar á þinginu, en ein hafði setið þingið sem varafulltrúi. Það var og er óásættanlegur árangur því að raddir kynjanna eiga auðvitað að heyrast að jöfnu í félagskerfi landbúnaðarins eins og annars staðar í samfélaginu. Þessi staða varð enda mörgum umhugsunarefni og er því miður enn. Samtök bænda gengust fyrir átaki í jafnréttismálum í kringum síðustu aldamót. Í kjölfar stefnumótunar Búnaðarþings 2001 var stofnsett sérstök jafnréttisnefnd Bændasamtakanna sem beitti sér fyrir ýmsum aðgerðum til að bæta jafnrétti innan félagskerfis landbúnaðarins. Það skilaði sér m.a. í stofnun samtaka kvenna í landbúnaði undir nafninu „Lifandi landbúnaður“ árið 2002. Því miður eru þau ekki starfandi um þessar mundir sem er miður því fyllsta ástæða er til að halda þessum málum vakandi. Það er enn mikið verk að vinna. Hlutfall kynjanna meðal félagsmanna er reyndar líka mjög skakkt, en karlmenn eru mikill meirihluti félagsmanna. Ástæða er til að hvetja konur sérstaklega til að ganga til liðs við samtökin. Það er öllum ljóst að hlutur kvenna er ekki minni en karla þegar kemur að búrekstrinum, en þess gætir því miður ekki nægilega vel á félagatalinu. Konur skipuðu meirihluta stjórnar BÍ 2013 Fulltrúafjöldinn á Búnaðarþingi er sem betur fer ekki lengur bara bundinn við annað kynið, en jöfnuði er þó fjarri því náð, því að á síðasta þingi voru konur 14 af 48 fulltrúum eða um 30%. Hins vegar gerðist það í fyrsta sinn við stjórnarkjör fyrir kjörtímabilið 2013–2016 að kjörnir stjórnarmenn voru að meirihluta konur. Það er vissulega alltaf misjafnt hverjir gefa kost á sér til starfa fyrir hagsmunasamtök stéttar sinnar, hvort sem þar er um að ræða samtök bænda, eða samtök á öðrum sviðum þjóðfélagsins. Hagsmunasamtök eins og Bændasamtökin geta ekki náð árangri á sínu sviði nema að hæfileikafólk í stéttinni af báðum kynjum vilji starfa í trúnaðarstöðum á vegum þeirra og að þau geti ráðið til sín gott starfsfólk. Félagsmálastörf fyrir hagsmunasamtök geta oft verið annasöm og taka óneitanlega tíma frá öðrum verkefnum, jafnvel þegar verst stendur á í búskapnum. Þá ganga þau á tíma fólks með fjölskyldum sínum og útheimta oft á tíðum mikinn skilning heima fyrir. Auðvitað er það svo að engin/n er neydd/ur til að taka þessi verkefni að sér. Það er val hvers og eins, en það er alger forsenda árangurs að okkar besta fólk hafi áhuga á að sinna þeim. Landbúnaðurinn þarf á öllum vinnufúsum höndum að halda. Saman sækjum við fram. /SSS Hjördís Heiða Ásmundsdóttir er einn af stofnendum hóps sem kallar sig Hjálpartæki, hjálpumst að og hefur það að markmiði að safna hjálpartækjum handa þeim sem ekki eiga rétt á þeim. „Ég hef því miður orðið vör við mjög stóran ágalla sem snýr að réttindum fatlaðra,“ segir Hjördís. „Það er nefnilega svo að samkvæmt reglum Trygginga- stofnunar eiga ekki allir rétt á hjálpargögnum þrátt fyrir að þurfa á þeim að halda. TR hafnar beiðnum frá læknum um hjálpartæki, meðal annars á þeim forsendum að ekki liggi fyrir greining.“ Langurt biðtími „Oft er langur biðtími eftir greiningu og getur hún tekið fleiri mánuði og jafnvel fleiri ár. Á meðan hefur viðkomandi ekki rétt á neinum hjálpartækjum og þarf því að leigja hjólastól hjá Hjálpartækjamiðstöðinni. En svo vill til að Hjálpartækjamiðstöðin er dótturfyrirtæki TR, og undir velferðarráðuneytinu. Það er hægt að leigja hjá þeim hjólastóla á rúmar 700 kr. á dag auk tryggingar. Sem gerir um 255.000 krónur á ári. Ekki veit ég um neinn öryrkja sem hefur efni á slíku í marga mánuði, jafnvel árum saman.“ Safna hjálpartækjum „Ég hef því ásamt fleirum stofnað hóp sem vinnur að því að gera lífið bærilegra fyrir þá sem virkilega þurfa á stuðningi og aðstoð að halda með því að safna saman hjálpargögnum sem fólk á, en er hætt að nota. Í hópnum eru líka sjálfboðaliðar sem gera við tækin sé þess þörf. Við þurfum að fá fólk til að koma hjálpartækjunum á ákveðinn stað þar sem aðrir, sem þurfa á þeim að halda, geta nálgast þau í stað þess að þeim sé hent. Ef einhver þarf einungis hjálpartæki tímabundið getur sá hinn sami komið aftur með þau og þau haldið áfram að þjóna sínum tilgangi, farið til næsta sem þarf hjálpartæki. Leggjumst öll á eitt og hjálpumst að,“ segir Hjördís. /VH Hjálpartækjasíminn: 845-8378 Netfang: hjalpartaeki.hjalpumstad @gmail.com Hópur á facebook: Hjalpumst ad, hjalpartæki. Áhugavert Hjálpartæki, hjálpumst að: Safna hjálpartækjum handa þeim sem ekki eiga rétt á þeim Stjórn Bændasamtaka Íslands. Fulltrúafjöldinn á Búnaðarþingi er sem betur fer ekki lengur bara bundinn við annað kynið, en jöfnuði er þó fjarri því náð, því að á síðasta þingi voru konur 14 af 48 fulltrúum eða um 30%. Hins vegar gerðist það í fyrsta sinn við stjórnarkjör fyrir kjörtímabilið 2013–2016 að kjörnir stjórnarmenn voru að meirihluta konur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.