Bændablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. júní 2015
Dagana 19. til 23. júní sl. var
haldin landbúnaðarsýningin Royal
Highland Show í Skotlandi og sóttu
sýninguna m.a. hópur íslenskra
sauðfjárbænda, en ferðin var farin
á vegum Félags sauðfjárbænda á
Vestfjörðum.
Tilgangur ferðalagsins var að
sækja sýninguna heim, en einnig
að kynna sér þarlendan landbúnað
og menningu. Ferðinni verður
gerð skil síðar, en hér á eftir fer
samantekt Snorra Sigurðssonar,
sem var fararstjóri í þessari ferð, um
ýmislegt áhugavert sem fyrir augu
bar á sýningunni.
Fjögurra daga sýning
Það er óhætt að segja að sýningin
eigi sér langa hefð, en sýningin
var haldin í fyrsta skipti árið 1822!
Sýningin hefur síðan verið haldin
reglulega, en sýningin í ár er sú 175.
í röðinni. Sýningarsvæðið er rétt í
útjaðri Edinborgar, og hefur aðsókn
gesta að henni aukist undanfarin ár
og um nýliðna helgi komu um 190
þúsund gestir þá fjóra daga sem
sýningin stóð sem er aukning um
á annan tug þúsunda gesta frá því
í fyrra. Þessi sýning er með þeim
stærri sem haldnar eru hér í Evrópu
og sem dæmi um umfang hennar þá
má nefna að sýningarsvæðið er alls
20 hektarar að stærð og auk þess
eru nýttir 60 hektarar lands undir
bílastæði, en alls er hægt að taka
á móti 20 þúsund farartækjum á
hverjum tíma.
Fjölbreytt að vanda
Líkt og undanfarin ár var sýningin
byggð upp í kringum búfjársýningu
en alls voru rúmlega eitt þúsund
kynbótanautgripir af 20 ólíkum
kúakynjum sem kepptu um hylli
kynbótadómaranna. Til mikils
var að vinna en veitt voru vegleg
peningaverðlaun fyrir bestu gripina.
Þá mættu fjárbændur til leiks með
2.000 hrúta, ær og lömb og var þar
hver annar glæsigripurinn á fætur
öðrum. Síðast en ekki síst ber að
telja hrossin, en alls voru í ár um
3 þúsund hross á sýningunni, öll
sýnd í keppnum en keppt var í 38
ólíkum flokkum með hrossin s.s. í
hindrunarstökki, kerrureið og fleira.
980 sýnendur
Utan um, og í kringum gripasýningar
og keppnir með þá, er svo fjölbreytt
sýning á nánast öllu því sem tengist
dreifbýli eins og vélum og tækjum,
Royal Highland Show – einstök
landbúnaðarsýning
Utan úr heimi
Ný tegund af vatnalilju uppgötvuð í Ástralíu:
Fannst í tjörn fullri af krókódílum
Hópur grasafræðinga frá Kew-
grasagarðinum í London og
kollegar þeirra í Vestur-Ástralíu
römbuðu á áður óþekkta vatnalilju
fyrir skömmu.
Grasafræðingarnir voru í leiðangri
í vestanverðri Ástralíu að rannsaka
og skrá tegundir vatnalilja þegar
þeir fundu eina tegund sem ekki
hefur verið skráð áður. Samkvæmt
heimildum Bændablaðsins fannst
lilja í tjörn sem var krökk af
krókódílum sem ná sjö metrum að
lengd og þurftu grasafræðingarnir
að leggja sig í talsverðan lífsháska
til að ná í eintak.
Tilgangur rannsóknanna er að
kortleggja og koma eintökum af
sjaldgæfum vatnaliljum í grasagarða
og varðveita þær þar áður en þær
verða útdauðar í náttúrunni.
Sýnishorn vatnaliljunnar óx í
rúmlega hálfsmetra djúpu vatni og
til hennar sást líka þar sem vatnið
var mun dýpra. Krónublöð nýju
liljunnar, sem ekki hefur verið gefið
nafn, eru fíngerð, hvít og bleik að lit.
/VH
Ólögleg námuvinnsla:
Gervihnattamyndir sýna ólöglega
gullvinnslu á friðlandi í Amason
Loft- og gervihnattamyndir sýna
að námufyrirtæki hafa hafið
ólöglega gullvinnslu á friðlandi í
Perú-hluta Amason-regnskógarins
sem ætlað er innfæddum.
Myndirnar sýna talsverða
skógareyðingu á landsvæði sem
skilgreint er sem friðland og svæði
sem ætlað er nokkrum ættbálkum
indíána sem búa á svæðinu.
Skógareyðingin er dreifð um svæðið
sem bendir til að gullvinnslan sé í
smáum stíl á hverjum stað en á móti
kemur að svæðin eru mörg.
Ólöglegur námugröftur og
gullvinnsla í Amason-skógi hefur
aukist mikið undanfarin ár og í Perú
er talið að skógareyðing af þeirra
völdum nemi um 50.000 hekturum.
Auk þess sem tré eru felld við
gullvinnsluna er mengun af hennar
völdum gríðarleg þar sem mikið af
kvikasilfri er notað við hana og það
berst í jarðveginn og út í árnar. /VH
Í Skotlandi hefur nú verið rekið um hríð holdanautabú sem hefur sérhæft sig í framleiðslu á japönskum Wagyu-
Angus-nautum dagsins í dag og þeim nautum sem voru uppi þegar
að rækta lengri skrokka, sem gefa eðlilega af sér meira kjöt auk þess
fallþunga á einungis 16 mánuðum!
KYNINNGARFUNDIR
UM FJARVIS.IS Á
VESTFJÖRÐUM
Þriðjudaginn 30. júní verða haldnir kynningarfundir um
skýrsluhaldskerfið í sauðfjárrækt, fjarvis.is.
Á fundunum verða kynntar þær breytingar og
endurbætur sem urðu á kerfinu við uppfærslu í lok mars.
Fundirnir verða sem hér segir:
Þriðjud. 30. júní - Holti, Önundarfirði kl. 14:00
Þriðjud. 30. júní - Birkimel, Barðaströnd kl. 20:00
Bændasamtök Íslands,
Bændahöllinni við Hagatorg,
107 Reykjavík