Bændablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. júní 2015 „Það kom aldrei annað til greina en að byrja upp á nýtt, það hvarflaði ekki að okkur að skella í lás. Við munum standa þetta áfall af okkur og halda ótrauð áfram,“ segir Anna Sigríður Pétursdóttir, sem ásamt eiginmanni sínum, Gísla Hallgrímssyni, á og rekur garðyrkjustöðina Brúnalaug í Eyjafjarðarsveit. Umtalsvert tjón, sem hleypur á tugum milljóna, varð í miklum eldsvoða í mars síðastliðnum. Uppbygging hefur staðið frá þeim tíma og fór fyrsta uppskera ársins á markað nýlega, alls 66 kíló sem er að minnsta kosti um 10 sinnum minna magn en vænta má á þessum árstíma. Uppskeran er að jafnaði 600 til 1.000 kíló. Anna Sigríður segir að framkvæmdum miði þokkalega, mikið starf hafi verið unnið frá því eldurinn kom upp, „en því er þó hvergi nærri lokið, “ segir hún en m.a. var verið að setja nýjar plastplötur á þak gróðurhúsanna þegar Bændablaðið leit við á Brúnalaug. Veðurfar á liðnu vori gerði að verkum að ekki var hægt að ljúka verkinu fyrr, úrkoma og vindur skipti þar mestu. „Veður á Íslandi hefur oft sett strik í reikninginn og það hefur tafið okkur talsvert.“ Tvö samliggjandi gróðurhús eru á svæðinu, hið stærra tæplega 600 fermetrar, hitt um 300 en á milli þeirra er bygging sem m.a. hýsir stjórnbúnað. Verkfall dýralækna hefur komið illa við garðyrkjubændur á Brúnalaug, en lífrænar varnir hafa ekki fengist afgreiddar. Matvælastofun þarf að votta innflutning á þeim, en þar hafa bændur komið að lokuðum dyrum vegna verkfalls. Tvívegis hefur þó fengist undanþága. „Það eru ýmis efni sem vantað hefur í garðyrkjuna undanfarnar vikur og kemur sér auðvitað illa. Plönturnar eru viðkvæmar og þetta ástand hefur komið sér illa, þær þrífast ekki eins vel,“ segir Anna. 10 sinnum minni uppskera en vant er Á Brúnalaug eru einkum ræktaðar paprikur og hefur ársframleiðslan undanfarin ár numið um 23–25 tonnum. Áætlanir gerðu ráð fyrir að uppskeran yrði á bilinu 5 til 6 tonn á tímabilinu frá því eldsvoðinn kom upp í mars og fram að júnímánuði. „Við erum að lágmarki búin að tapa um 5 tonnum af okkar framleiðslu miðað við síðastliðin ár. Fyrsta uppskeran er nýlega farin á markað og magnið var umtalsvert minna en vanalega. Á móti kemur samt að ég átti ekki von á að fá neitt upp úr þeim húsum sem urðu fyrir brunatjóni fyrr en undir mánaðamót, uppskera er fyrr á ferðinni en ég vænti, það fylgir því góð tilfinning að fá uppskeru svo snemma, það er jákvætt,“ segir Anna. Bera sjálf mikinn kostnað Tjón af völdum brunans hleypur á tugum milljóna, en talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni. Tryggingafélag Önnu og Gísla greiðir 69% af tryggingamati við endurbætur á gróðurhúsum og tekur einnig þátt í kaupum á rafmagnstöflu upp að ákveðnu marki. Að öðru leyti bera þau tjónið sjálf. „Því er ekki að neita að þetta er mikill skellur fyrir okkur,“ segir Anna, en auk þess að greiða sjálf hluta af kostnaði við uppbyggingu verður stöðin tekjulítil fyrsta kastið, eða þar til reksturinn nær sér á fyrra flug á ný, sem verður ekki fyrr en seinni partinn í júlí eða ágúst. /MÞÞ Uppbyggingu í Brúnalaug miðar vel eftir eldsvoða í vetur: Stöndum áfallið af okkur og höldum ótrauð áfram Myndir / MÞÞ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.