Bændablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. júní 2015
„Það kom aldrei annað til greina
en að byrja upp á nýtt, það
hvarflaði ekki að okkur að skella
í lás. Við munum standa þetta áfall
af okkur og halda ótrauð áfram,“
segir Anna Sigríður Pétursdóttir,
sem ásamt eiginmanni sínum,
Gísla Hallgrímssyni, á og rekur
garðyrkjustöðina Brúnalaug í
Eyjafjarðarsveit.
Umtalsvert tjón, sem hleypur
á tugum milljóna, varð í miklum
eldsvoða í mars síðastliðnum.
Uppbygging hefur staðið frá þeim
tíma og fór fyrsta uppskera ársins
á markað nýlega, alls 66 kíló sem
er að minnsta kosti um 10 sinnum
minna magn en vænta má á þessum
árstíma. Uppskeran er að jafnaði 600
til 1.000 kíló.
Anna Sigríður segir að
framkvæmdum miði þokkalega,
mikið starf hafi verið unnið frá
því eldurinn kom upp, „en því er
þó hvergi nærri lokið, “ segir hún
en m.a. var verið að setja nýjar
plastplötur á þak gróðurhúsanna
þegar Bændablaðið leit við á
Brúnalaug. Veðurfar á liðnu vori
gerði að verkum að ekki var hægt að
ljúka verkinu fyrr, úrkoma og vindur
skipti þar mestu. „Veður á Íslandi
hefur oft sett strik í reikninginn
og það hefur tafið okkur talsvert.“
Tvö samliggjandi gróðurhús eru á
svæðinu, hið stærra tæplega 600
fermetrar, hitt um 300 en á milli
þeirra er bygging sem m.a. hýsir
stjórnbúnað.
Verkfall dýralækna hefur komið
illa við garðyrkjubændur á Brúnalaug,
en lífrænar varnir hafa ekki fengist
afgreiddar. Matvælastofun þarf að
votta innflutning á þeim, en þar
hafa bændur komið að lokuðum
dyrum vegna verkfalls. Tvívegis
hefur þó fengist undanþága. „Það
eru ýmis efni sem vantað hefur í
garðyrkjuna undanfarnar vikur og
kemur sér auðvitað illa. Plönturnar
eru viðkvæmar og þetta ástand hefur
komið sér illa, þær þrífast ekki eins
vel,“ segir Anna.
10 sinnum minni uppskera en
vant er
Á Brúnalaug eru einkum ræktaðar
paprikur og hefur ársframleiðslan
undanfarin ár numið um 23–25
tonnum. Áætlanir gerðu ráð fyrir að
uppskeran yrði á bilinu 5 til 6 tonn
á tímabilinu frá því eldsvoðinn kom
upp í mars og fram að júnímánuði.
„Við erum að lágmarki búin að tapa
um 5 tonnum af okkar framleiðslu
miðað við síðastliðin ár. Fyrsta
uppskeran er nýlega farin á markað
og magnið var umtalsvert minna en
vanalega. Á móti kemur samt að ég
átti ekki von á að fá neitt upp úr þeim
húsum sem urðu fyrir brunatjóni fyrr
en undir mánaðamót, uppskera er
fyrr á ferðinni en ég vænti, það fylgir
því góð tilfinning að fá uppskeru svo
snemma, það er jákvætt,“ segir Anna.
Bera sjálf mikinn kostnað
Tjón af völdum brunans hleypur
á tugum milljóna, en talið er að
kviknað hafi í út frá rafmagni.
Tryggingafélag Önnu og Gísla
greiðir 69% af tryggingamati við
endurbætur á gróðurhúsum og tekur
einnig þátt í kaupum á rafmagnstöflu
upp að ákveðnu marki. Að öðru leyti
bera þau tjónið sjálf. „Því er ekki að
neita að þetta er mikill skellur fyrir
okkur,“ segir Anna, en auk þess að
greiða sjálf hluta af kostnaði við
uppbyggingu verður stöðin tekjulítil
fyrsta kastið, eða þar til reksturinn
nær sér á fyrra flug á ný, sem verður
ekki fyrr en seinni partinn í júlí eða
ágúst. /MÞÞ
Uppbyggingu í Brúnalaug miðar vel eftir eldsvoða í vetur:
Stöndum áfallið af okkur
og höldum ótrauð áfram
Myndir / MÞÞ