Bændablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 50

Bændablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. júní 2015 Vélabásinn liklegur@internet.is Hjörtur L. Jónsson Í mörg ár átti ég Nissan X-Trail sem þjónaði mér ágætlega sem jepplingur, en nú er kominn nýr X-Trail sem hægt er að fá í nokkrum útgáfum. Ég fékk fyrir skömmu til prufuaksturs hjá BL Nissan X-Trail Tekna Plus sjö sæta dísilbíl með 130 hestafla vél. Bíllinn sem ég prófaði er sá dýrasti með mestum útbúnaði og kostar 6.690.000, en ódýrasti fjórhjóladrifni X-Trail bíllinn er frá 5.890.000 og er þá fimm manna. Ódýrasti X-Trail bíllinn er hins vegar bara með framhjóladrifi og kostar frá 5.490.000. Mikið lagt upp úr öryggi og þægindum farþega Í nýja bílnum er greinilega lagt mikið upp úr öryggi, en bíllinn kemur með mörgum mjög gagnlegum öryggisbúnaði, fjarlægðarskynjarar framan og aftan, neyðarhemlunarbúnaði, akreinavara, 360 gráðu myndavélarbúnaði þegar lagt er í stæði, skynjar umferðarskilti og birtir í upplýsingarskjá, bakkmyndavél, bremsubúnaði sem heldur við í brekkum (hill start assist), stöðugleikakerfi, blindhornsvari o.fl. Það sem vakti mesta athygli mína var 360 gráðu myndavélabúnaðurinn sem kemur upp á upplýsingaskjáinn þegar bíllinn er settur í bakkgír. Að leggja bílnum í stæði með þessum búnaði er hrein snilld og mætti vera í fleiri bílum. Blindhornsvarinn var í bílnum sem ég prófaði, en er ekki í öllum X-Trail (er bara í Tekna bílnum sem ég prófaði). Blindhornsvarinn virkar þannig að lítið gult ljós kviknar þegar bíll eða mótorhjól er á blindhornssvæðinu sem maður sér ekki vel í hliðarspeglum (u.þ.b. 45 gráður frá afturhorni bíls). Þessi búnaður ætti að vera í öllum bílum og er að mínu mati eitthvað sem allir bílar verði með innan nokkurra ára. Þægilegur í akstri, en tog vélar lítið Allir X-Trail bílarnir sem eru fjórhjóladrifnir koma beinskiptir (þeir framhjóladrifnu með sjálfskiptingu). Það eina sem angraði mig við aksturinn á þessum bíl í prufuakstrinum var lítið tog vélarinnar á lágum snúningi, en þegar hægt var mikið á fyrir beygju þarf að skipta niður um gír til að maður píni ekki vélina í of háum gír út úr beygjunni (ósköp eðlilegt þar sem vélin er ekki nema 1598cc). Þegar ég ók bílnum á malbiki fannst mér bíllinn liggja vel á veginum og svara vel í beygjum (nánast eins og sportbíll) enda er Tekna á 19 tommu álfelgum. Á 19 tommu álfelgum á malarvegi eru bílar almennt ekki skemmtilegir og svo var um þennan (maður finnur fyrir nánast öllum smásteinum), allir X-Trail nema þessi sem ég prófaði eru á 17 tommu dekkjum sem gefa betur eftir og henta betur á malarvegum. Lítil dísilvélin sparneytin og hentar vel til langkeyrslu Uppgefin meðaleyðsla á hundraðið er 5,3 lítrar í blönduðum akstri, en miðað við þann stutta prufuakstur sem ég tók tel ég að vel sé hægt að ná bílnum undir 5 lítrum í langkeyrslu sé hann ekki þunglestaður, en þar sem að vélin er ekki nema 1598cc er bíllinn ekkert sérstaklega hentugur til að draga þungar kerrur gagnvart eldsneytissparnaði. Farangursrými er gott og í skottinu er varadekk, þó ekki í fullri stærð, en ekki svo kallaður „aumingi“ (mætti kalla dekkið stóran aumingja). Miðað við verð og útbúnað í þessum bíl tel ég að kaup á X-Trail sé mjög góð fjárfesting. Í samanburði við gamla Nissan X-Trail bílinn sem ég átti er nánast ekkert sambærilegt, allt í nýja bílnum er betra og þægilegra og treysti ég mér ekki til að bera bílana saman nema með þeim orðum að þessi X-Trail er nýr og allt sem í honum er. Hæð 1.695 mm Breidd 1.820 mm Lengd 4.653 mm Helstu mál og upplýsingar Upphituð nærföt … – ertu ekki að grínast! Í lok maí og byrjun júní fór ég hvorn sinn hringinn í kringum landið á mótorhjóli. Fyrirfram var vitað að þetta yrðu frekar kaldar ferðir. Eyþór Örlygsson hjá Reykjavík Motor Center bauð mér að prófa nærföt sem eru upphituð í ferðunum. Ég vildi hvorki treyju né vesti þar sem ég keyri alltaf í brynju og minnist þess ekki að hafa orðið kalt í henni á efri hluta líkamans, en þáði síðar nærbuxur til að prófa. Vantrúaður á að þetta gerði nokkurt gagn var ég búinn að vera á ferðinni í nokkra daga áður en ég prófaði. Þvílíkri undraflík hef ég ekki klæðst Á fyrsta degi prófaði ég að vera með rafhlöðuna stillta á 25% af orku og eftir 10 og hálfan tíma var rafhlaðan ekki enn tóm. Næsta dag var ég með stillt á 50% og þá dugði rafhlaðan í 7 og hálfan tíma. Dag 3 hafði ég stillt á 75% og entist rafhlaðan þá í rúma 5 tíma. Með stillt á 75% var of heitt að labba nokkuð því þá svitnaði ég undan hitamottunum fyrir ofan hné og við buxnastrenginn þar sem eru hitamottur líka. Ef ég kom einhvers staðar inn þá var of heitt með stillinguna á 75%. Síðasta dag ferðarinnar var töluverð rigning og prófaði ég þá 100%, en varð að stoppa eftir um 10 mín. akstur og slökkva á rafhlöðunni þar sem 100% er of mikill hiti og mér fannst ég vera að brenna undan hitamottunum, setti svo síðar á 50% og þó svo að ég væri blautur fann ég ekki fyrir kulda á lærum og upp við buxnastreng. Kjörið fyrir stangveiði, gæsaskyttur, grenjaskyttur og fleiri Eftir þessa reynslu mína ætla ég ekki að skila prufubrókinni, hún getur komið sér vel við ýmisleg kuldastörfin. Fyrir mér er þessi flík eitthvað sem veiðimaður í kaldri á ætti að eiga, gæsaskytta sem bíður eftir morgunflugi á köldum haustmorgni eða grenjaskyttu sem verður að liggja á greni á köldum nóttum og að geta sett smá hita á brókina hlýtur að gera útiveruna þægilegri. Einnig mundi ég halda að svona klæðnaður henti vel fyrir björgunarsveitir til að klæða þann sem leitað er að þegar hann finnst blautur og kaldur. Eini ókosturinn sem ég sé við þessi föt er að þvo þau, en ég mundi bara fara í mínum í sturtu og hengja upp rennandi blautt á eftir sturtuna. Fötin eru til í ýmsum stærðum, en númerin eru frekar lítil og ég sem yfirleitt klæðist númeri M prófaði L sem var síður en svo of stórt, en verðið er með hleðslutæki og rafhlöðu: Bolur 25.229, vesti karl 41.636, vesti kona 39.449 og síðbuxur 31.558 kr. Nissan X-Trail: Nýr sjö manna gjörbreyttur Nissan X-Trail á góðu verði Bíll í blindhorninu og gula ljósið kviknar. Bakkmyndavélin til vinstri og 360 gráðu myndin til hægri þegar bakkað er í stæði. Nissan X-Trail Tekna. Myndir / HLJ Hitamotturnar eru á um 15 cm svæði fyrir ofan hné og í streng. Lítið fer fyrir höggheldri rafhlöðunni í buxnastrengshulstrinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.