Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1957, Qupperneq 8

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1957, Qupperneq 8
6 Alþingiskosningar 1956 1874, og sömuleiðis er þar stuttlega greint frá skilyrðum fyrir kosningarétti síðan 1903. Vísast til þess. Af kjósendatölunni 1956 voru 49,6% karlar, en 50,4% konur. Koma 1 018 kven- kjósendur á móts við hvert þúsund karlkjósendur, þar sem hins vegar enginn telj- andi munur er á tölu allra karla og kvenna á landinu. Stafar þetta af því, að innan við kosningaraldur (21 ár) eru heldur fleiri karlar en konur, en á kosningaraldri eru konur þeim mun fleiri. Af öllum kjósendum á landinu 1956 komu að meðaltali 1 762 kjósendur á hvern þingmann, en 1 684 við næstu kosningar á undan, sumarið 1953. Tala kjósenda í hverju kjördæmi við kosningarnar 1956 er sýnd í töflu I (bls. 16). Mikið ósamræmi er milli kjósendatölu og þingmannatölu í einstökum kjör- dæmum, enda ciga uppbótarþingsætin að bæta úr því. Minnst kjósendatala kemur á þingmann á Seyðisfirði, 426, þar næst í Dalasýslu, 703, og í Norður-Múlasýslu, 738, en í 9 kjördæmum alls koma færri en 1 000 kjósendur á þingmann. Aftur á móti kemur hæst kjósendatala á þingmann í Gullbringu- og Kjósarsýslu, 7 515, og þar næst í Reykjavík, 4 700, á Akureyri, 4 640, og í Hafnarfirði, 3 386. í öðrum kjördæmum koma færri en 3 000 kjósendur á þingmann. 2. Kosningahluttaka. Participation in elections. Við kosningarnar sumarið 1956 greiddu alls atkvæði 84 355 manns eða 92,1% af allri kjósendatölunni á landinu. Er það meira en nokkru sinni áður, þegar ekki er talin með atkvæðagreiðslan um niðurfelling sambandslaga og stofnun lýðveldis 1944, en þá var hluttakan 98,4%. Mesta kosningahluttaka við kosningar áður var 1953, 89,9%, og næst þar á undan 1949, 89,0%. í skýrslu Hagstofunnar um alþingiskosningarnar 1949, bls. 6—8, er gerð nokkur grein fyrir hluttöku í kosningum frá 1874. Vísast til þess. Síðan 1934 hefur kosningahluttakan verið sem hér segir: 1934 81,5% 1946 87,4% 1937 87,9,, 1949 89,0,, 1942 '/7 80,3 „ 1953 89,9 „ 1942 “/10 82,3 „ 1956 92,1 „ 1944 Þegar litið er sérstaklega á hluttöku karla og kvenna í kosningunum, þá sést í 1. yfirliti (bls. 7), að hluttaka kvenna er minni en hluttaka karla. Við kosningarnar 1956 greiddu atkvæði 94,8% af karlkjósendum, en 89,4% af kvenkjósendum. Við kosningarnar 1953 voru þessi hlutföll 92,8 og 87,0, og hefur því munurinn á kosn- ingahluttöku karla og kvenna verið svipaður þá. Hins vegar var munurinn tölu- vert meiri við kosningarnar 1946 og 1949. í töflu I (bls. 16) sést, hve margir af kjósendum hvers kjördæmis hafa greitt atkvæði við kosningarnar 1956. Hve mikil kosningahluttakan var hlutfallslega í einstökum kjördæmum, sést í 1. yfirlitstöflu (bls. 7). Mest var kosningahluttakan á Seyðisfirði (96,2%), en minnst var hún í Suður-Þingeyjarsýslu (86,5%). í Norður- Múlasýslu var kosningahluttaka karla hæst (97,0%), en kvenna á Seyðisfirði (96,9%). Kosningahluttaka karla var minnst í Austur-Húnavatnssýslu (90,1%), en kvenna í Suður-Þingeyjarsýslu (81,8%). Hluttaka kvenna var minni í 16 kjör- dæmum (af 28) heldur en hluttaka karla, þar sem hún var minnst, en í 1 kjördæmi, Seyðisfirði, var hluttaka kvenna meiri en karla.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.