Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1957, Síða 13
Alþingiskosningar 1956
11
nefndi var stofnaður 4. apríl 1956 vegna kosninganna, sem í vændum voru, og
stóðu að honum Sósíalistaflokkurinn og Málfundafélag jafnaðarmanna. Lýðveldis-
flokkurinn og Sósíalistaflokkurinn buðu nú ekki fram. Sjálfstæðisflokkurinn og
Alþýðubandalagið höfðu frambjóðendur í öllum kjördæmum og Þjóðvarnar-
flokkurinn í 22. Alþýðuflokkurinn og Framsóknarflokkurinn höfðu kosningasam-
vinnu sín á milli, þannig, að þeir höfðu livergi báðir frambjóðendur í sama kjör-
dæmi. Framsóknarflokkurinn bauð fram í 17 kjördæmum en Alþýðuflokkurinn
í 11. Kjördæmin, sem Alþýðuflokkurinn bauð fram í með stuðningi Framsóknar-
flokksins, voru þessi: Reykjavík, Hafuarfjörður, Gullbringu- og Kjósarsýsla, Borg-
arfjarðarsýsla, Snæfellsnessýsla, ísafjörður, Norður-ísafjarðarsýsla, Austur-Húna-
vatnssýsla, Siglufjörður, Akureyri og Vestmannaeyjar. I öllum öðrum kjördæmum
hafði Framsóknarflokkurinn framboð, sem studd voru af Alþýðuflokknum. Kjör-
dæmin sex, sem Þjóðvarnarflokkurinn bauð ekki fram í, voru þessi: Vestur-Isa-
fjarðarsýsla, ísafjörður, Vestur-Húnavatnssýsla, Siglufjörður, Seyðisfjörður og
Vestur-Skaftafellssýsla.
Frambjóðendur skiptust þannig á kjördæmi:
Reykjavík ................................... 64
Tveggja manna kjördæmi ...................... 96
Eins manns kjurdæmi ......................... 79
Frambjóðendur við kosningarnar 1956 eru allir taldir með stöðu og heimili í
töflum III og IV (bls. 20—26).
Við kosningarnar 1956 voru í kjöri 47 þingmenn, sem setið höfðu sem aðal-
menn á næsta þingi á undan. Af þessum frambjóðendum náðu 38 kosningu, annað
hvort sem kjördæmaþingmenn eða uppbótarþingmenn. Hinir 5 þingmenn undan-
farandi kjörtímabils, sem ekki voru í kjöri, voru: Andrés Eyjólfsson, Brynjólfur
Bjarnason, Helgi Jónasson, Jörundur Brynjólfsson og Sigurður Guðnason. En þeir
9 þingmenn, sem náðu ekki kjöri, voru: Bergur Sigurbjörnsson, Eggert G. Þorsteins-
son, Einar Ingimundarson, Gils Guðmundsson, Gísli Jónsson, Ingólfur Flygenring,
Jónas Rafnar, Lárus Jóhannesson og Villijálmur Hjálmarsson. Hinir 14 nýkosnu
þingmenn voru: Ágúst Þorvaldsson, Áki Jakobsson, Alfreð Gíslason, Benedikt
Gröndal, Björgvin Jónsson, Björn Jónsson, Friðjón Skarphéðinsson, Friðjón Þórð-
arson, Halldór E. Sigurðsson, Ólafur Björnsson, Pétur Pétursson, Ragnbildur
Helgadóttir, Sigurvin Einarsson og Sveinbjörn Högnason. Tveir þessara þing-
manna hafa verið þingmenn áður (Áki Jakobsson árin 1942—1953 og Sveinbjörn
Högnason árin 1931—1933 og 1937—1946), og einn hefur verið nokkrum sinnum
á þingi sem varamaður, en stuttan tíma í hvert sinn (Ólafur Björnsson).
Eftirfarandi yfirlit sýnir, hve margir af þeim, sem þingsæti náðu við 6 síðustu
kosningar, bjuggu í kjördæminu, sem þeir buðu sig fram í, og hve margir utan þess:
Innanhéraðs Utanhéraðs •/, 1942 29 20 1942 29 23 1946 29 23 1949 34 18 1953 38 14 1956 36 16
Saratals 49 52 52 52 52 52
Flestir utanhéraðsþingmanna eru búsettir í Reykjavík, 14 af 16 við kosning-
arnar 1956.
í töflu IV (bls. 24) er getið um fæðingarár og -dag allra þeirra, sem þingsæti
hlutu við kosningarnar 1956. Eftir aldri skiptust þeir þannig:
21—29 ára .................. 1 60—69 ára ................ 13
30—39 „ 8 70 ára og eldri............ 1
40—49 „ 16
50—59 „ 13
Samtals 52