Hagskýrslur um húsnæðismál - 01.01.1968, Page 19
Húsnæilisskvrslur 1960
17*
D. Hcimili households.
Skilgreining á hugtakinu „heimili“ í sambandi við húsnæðisskýrslur og mann-
talsskýrslur er á bls. 7* hér að framan.
Tala heimila kemur fram í töflum I og VIII. Töldust þau alls 44 428. Tala
íbúða, sem búið var í, var 39 613, og voru því heimilin 4 815 fleiri en íbúðirnar.
í töflu VII kemur fram, að þessi heimili eru í alls 3 997 íbúðum og hafa því verið
3 eða fleiri heimili í um 800 íbúðum. Þegar 2 eða fleiri heimili voru í íbúð, var nærri
undantekningarlaust um að ræða „leigjandaheimili" eða safn leigjandaheimila
(reiknað sem eitt heimih) með hinu eiginlega heimih í íbúðinni. Húsnæðisskýrslur
1960 leiða það í ljós, að tvö fjölskylduheimili hvort með sína matseld í sama eldhúsi
hafi þá verið úr sögunni (fleiri en eitt fjölskylduheimili voru í 3 595 íbúðum 1950),
og að mjög fá leigjandaheimili hafi haft aðgang að eldhúsi í viðkomandi íbúð.
í töflu VIII er að fá upplýsingar um, í livers konar íbúðum er helzt um að ræða
tvö eða fleiri heimih. Að vísu svarar mismunur sá, sem þar er á tölu heimila og
tölu íbúða, ekki alveg til þeirra íbúða, sem hér um ræðir, en hann stafar þó að
mestu leyti af þessu. Líku máli gegnir um mismun á tölu heimila og íbúða eftir
tegund húsa í töflu I. Við sundurgreiningu íbúða (eftir aldri, byggingarefni húss,
staðsetningu í húsi, o. fl.) kemur ekki fram mismunur hvað snertir tíðleika fleiri
en eins heimihs í íbúð, nema þegar flokkað er eftir stærð íbúða. Þar verða, eins
og við er að búast, íbúðir með fleiri en einu heimih tiltölulega fleiri eftir því sem
íbúðir stækka.
í töflu VII eru nánari upplýsingar um þær íbúðir, sem í eru tvö eða fleiri
heimili, en þær eru alls 3997 talsins. Hér á eftir er sýnt, í hve mörgum íbúðum af
hverjum þúsund íbúðum, sem búið var í, voru fleiri en eitt heimili, eftir tegund húss
og fjölskyldukjarna, svo og eftir hinum 4 flokkum byggðarstigs:
Eftir tegund húss: Allt landið Reykjavík Stærri bæir Minni breir Strjálbýli
AUar íbúðir 101 139 85 67 48
Á bœndabýlum 48 100 25 70 47
í einbýlishúsum 93 122 89 69 61
í fjölbýlishúsum 122 137 79 62 28
I bráðabirgðahúsum 53 65 34 - -
I öðrum húsum 147 201 99 91 26
Ótilgreint 143 175 133 58 91
Eftir fjölskyldutegund:
Hjá barnlausum hjónum 137 176 113 80 73
Hjá hjónum með börnum 90 118 79 67 54
Hjá foreldri með börnum 144 191 124 73 42
Hjá öðru sambýlisfólki .. Hjá einbýlingi I íbúð, 74 120 63 55 24
leigjendum 137 191 78 58 8
Þá er einnig hér á eftir sýnd þéttseta þessara sömu íbúða eftir tegund f jölskyldi arna í þeim: Allt landið Reykjavík Stœrri bæir Minni bæir Strjálbýli
Allar íbúðir 5,49 5,12 5,69 5,97 7,35
Fjölskyldutegund:
Bamlaus hjón 4,12 4,00 4,15 4,11 5,31
Hjón með börn 6,30 6,01 6,33 6,55 7,63
Foreldri með börn 4,77 4,65 4,89 4,95 5,89
Annað sambýli Einbýli í íbúð, 6,26 5,79 5,96 7,70 8,92
leigjendur 3,02 3,04 2,93 2,57 4,50
c