Skólavarðan - 01.08.2007, Blaðsíða 10
10
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 7. ÁRG. 2007
nemendur geta mun fyrr á námsferlinum
lagt áherslu á þær greinar sem vekja áhuga
þeirra og þeir hafa hæfileika til að ná
miklum framförum í. Einstaklingsmiðuðu
námi verður raunverulega komið á og
leiðarljósið verður að nemendur hafi rétt
til að ná þroska og byggja upp sjálfsmynd
eftir þeirri braut sem opnar gáttir hjá
hverjum og einum.
Ef við svo hugum að listmenntun sér-
staklega þá er hún leið sem þjóðir geta
farið til að rækta og þroska mannauð sem
auðlind. Hún er svo aftur uppsprettan
sem þjóðir verða að sækja í ef þær vilja
rækta, þroska og þróa sterkar, sjálfbærar
og skapandi iðngreinar og framleiðslu
eins og fram kemur í Vegvísinum,” segir
Sigrún. „Hann tekur fyrir hin ólíku gildi og
markmið með listfræðslu og ég vil tengja
þá sýn sem þar er sett fram við hugmyndir
okkar í stjórn félagsins um menntakerfi
framtíðarinnar. Verðmætasköpun lista og
menningar hefur þegar verið dregin fram
í dagsljósið, sem og mikilvægi sköpunar-
krafts í atvinnulífi í nútíð og framtíð. Að
auka veg tónlistarkennslu og listfræðslu í
menntun einstaklinga er einfaldlega í takt
við nútímalega menningar- og mennta-
stefnu.
Af framangreindu þykir okkur í stjórn
Félags tónlistarskólakennara eðlilegt
að tónlistarskólar séu teknir með meira
afgerandi hætti inn í heildarmyndina -
þeir eru nú þegar ómissandi hlekkur í
menntakerfi og menningarlífi þjóðarinnar.
Við erum rétt að hefja þessa umræðu
„FT setur sér að hafa frumkvæði að söfnun og
miðlun upplýsinga um starfsemi tónlistarskóla og
gildi tónlistarmenntunar.”
„FT hefur það á stefnuskrá sinni að efla alþjóðlegt
samstarf og leggur áherslu á að afla upplýsinga
um það nýjasta sem á sér stað í tónlistarskólum í
heiminum og miðla um leið til annarra af reynslu
og þekkingu Íslendinga. FT vill með þessu stuðla að
frjórri umræðu um fagmál innan stéttarinnar.“
„FT telur mikilvægt að menntun tónlistarkennara
hér á landi sé í samræmi við hlutverk og þarfir
tónlistarskólanna og sé aðlöguð alþjóðlegu
umhverfi og samræmdum viðmiðum.“
„Tónlistarskólar gegna lykilhlutverki í
uppbyggingu tónlistarlífs í landinu og vill FT efla
umræðu um stöðu þeirra sem nauðsynlegur hluti
menntunar og menningar hvers samfélags.“
„FT vill hvetja til aukinna tengsla tónlistarskóla
við aðrar stofnanir í samfélaginu m.a. með miðlun
þekkingar á sviði tónlistar til aðila eins og leikskóla,
grunnskóla, framhaldsskóla, einstaklinga, annarra
stofnana og menningarlífsins í heild.“
„FT telur að aðalnámskrá tónlistarskóla þurfi að
vera í stöðugri endurskoðun til að geta uppfyllt
hlutverk sitt hverju sinni og endurspeglað þá
þróun sem á sér stað.“
Verðmætasköpun lista og menningar hefur þegar verið dregin fram í dagsljósið,
sem og mikilvægi sköpunarkrafts í atvinnulífi í nútíð og framtíð. Að auka veg
tónlistarkennslu og listfræðslu í menntun einstaklinga er einfaldlega í takt við
nútímalega menningar- og menntastefnu.
í félaginu og það verður gaman að fá
að heyra meira frá félagsmönnum um
þessar hugmyndir á svæðisþingunum og
öðrum vettvangi á næstunni. Tónlistin
hefur óteljandi möguleika,“ segir Sigrún
að lokum, „og við tónlistarskólakennarar
hlökkum til að halda áfram að kanna þá
möguleika.“
keg
ÍSLENSK MENNTUN, MENNTASTEFNA OG -FRAMKVÆMD 3.GREIN