Skólavarðan - 01.08.2007, Side 14
14
HEIMSÞING KENNARA Í BERLÍN
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 7. ÁRG. 2007
Fólk er útilokað frá menntun á ýmsum
forsendum, svo sem af völdum fátæktar,
barnaþrælkunar, alnæmis, kynhneigðar,
stríðsátaka, fangelsunar og morða
á kennurum, þjóðernis, kyns, trúar,
fötlunar, tungumáls og húðlitar. Tíu
fulltrúar frá Kennarasambandi Íslands
sátu fimmta þing alheimssamtaka
kennara (Education International, EI)
sem haldið var í Berlín 21. - 26. júlí sl.
Hátt í tvö þúsund þátttakendur frá
169 þjóðlöndum mættu á þingið. EI
eru samtök stéttarfélaga og sambanda
kennara um allan heim sem stofnuð voru
árið 1994 og eru félagsmenn rúmlega
þrjátíu miljónir. Þingið var innihaldsríkt,
upplýsingar sem fram komu sláandi
og ályktanir sem samþykktar voru
mikilvægar fyrir nemendur og kennara,
lýðræði og réttlæti.
Efst í huga íslensku þátttakendanna eftir
þingið voru þau mannréttindabrot sem
framin eru á kennurum víða um heim og
auk þess gífurlegur launamunur milli landa.
Sem dæmi má nefna að hátíðarkvöldverður
á þinginu kostaði 80 evrur og mánaðarlaun
aðstoðarleikskólastjóra frá Austur-
Evrópu, sem var þátttakandi á þinginu,
eru um 300 evrur. Það þykja há laun í
heimalandi hans. Miljónir kennara um
allan heim lifa undir fátæktarmörkum.
Í þýsku pressunni var vakin athygli á því
að vegna hnattrænnar starfsemi sinnar
fjallaði heimsþing EI um dálítið önnur
mál en eru daglega til umræðu í evrópskri
pressu, t.d. í Þýskalandi. Þessi ábending
blaðamannsins þýska endurspeglar þróun
í átt til æ staðbundnari fréttaflutnings
sem gætir í fjölmiðlun í mörgum löndum.
Um leið vaxa alþjóðleg samtök á borð við
EI dag frá degi og áhrif þeirra aukast.
Menntun fyrir alla ekki í sjónmáli
– bera þarf virðingu fyrir kennara-
stéttinni
Að þessu sinni var á heimsþingi kennara
lögð sérstök áhersla á að ræða og hrinda
í framkvæmd áætlunum sem stuðla að
félagslegu réttlæti og góðri menntun
víða um heim. Góð menntun og félagslegt
réttlæti voru jafnframt yfirskrift þingsins,
eða nánar tiltekið „Educators joining
together for quality education and social
justice“. Á þinginu var rætt um aðstæður
kennara og skólabarna sem eru með
alnæmi, málefni barna sem kölluð eru
til herþjónustu, mismunun stúlkubarna,
ofsóknir og morð á kennurum víða um
heim, svo sem í Eþíópíu, Kólumbíu og á
Filippseyjum, þá staðreynd að í ýmsum
löndum er undir hælinn lagt hvort
kennarar fá launin sín yfirhöfuð greidd og
ótal margt fleira. EI er aðili að Menntun
fyrir alla (EFA Education for all) sem
UNESCO heldur utan um og hleypt var
af stokkunum árið 1990. Enn er óralangt
í land með að allir íbúar heimsins hafi
Góð menntun og félagslegt réttlæti
Heimsþing kennara í Berlín vettvangur baráttu gegn útilokun frá menntun
Lj
ó
sm
y
n
d
ir
:
Ó
la
fu
r
Lo
ft
ss
o
n
„Botnlaus gróðafíkn fyrirtækja er á kostnað launa
og launatrygginga, vinnuaðstæðna og öryggis, og
kemur í veg fyrir að ríkisstjórnir fái þær skatttekjur
sem þarf til að standa straum af almannaþjónustu á
borð við heilbrigðis- og menntakerfið.“
Sharan Burrow