Skólavarðan - 01.08.2007, Blaðsíða 15
15
HEIMSÞING KENNARA Í BERLÍN
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 7. ÁRG. 2007
aðgang að góðri almennri menntun eins
og áætlunin kveður á um.
Horst Köhler forseti Þýskalands setti
þingið og sagði meðal annars að í jafnt
evrópskri og arabískri bókmenntahefð væri
kennurum lýst sem garðyrkjumönnum sem
annast hvert og eitt barn af alúð, styðja
það og næra í uppvextinum og stuðla að
því að það þroski hæfileika sína. „Þess
vegna,“ sagði Köhler, „verðum við að
vera reiðubúin til að tryggja að kennarar
búi við þær starfsaðstæður sem þeir eiga
skilið. Þetta er ekki einvörðungu spurning
um laun. Við verðum líka að sjá til þess að
bekkjarstærðir séu viðunandi, að kennarar
njóti faglegs og félagslegs stuðnings, að
skólinn sé að fullu innlimaður í félagslegt
umhverfi sitt og að virðing sé borin fyrir
kennarastéttinni.“ Þá ræddi Köhler um
hnattræna fátækt og sagði að ríkari þjóðir
heims þyrftu og gætu gert mun meira í
baráttunni gegn henni.
Útrýming alnæmis eitt brýnasta
baráttumál samtímans
Forseti alheimssamtaka kennara, Thulas
Nxesi, bauð gesti þingsins velkomna og
sagði meðal annars: „Við komum hingað
sameinuð í umhyggju okkar fyrir börnum
og framtíð góðrar almennrar menntunar
sem hvílir á stoðum lýðræðis og er grund-
vallarréttur allra.“ Thulas er að hefja annað
kjörtímabil sitt en hann tók við af dr. Mary
Futrell á heimsþinginu 2004. Hann er
kennari og var í áratug framkvæmdastjóri
Lýðræðislega kennarasambandsins í
Suður-Afríku (SADTU), eða frá 1994 og
þar til hann tók við af Futrell sem forseti
EI. Hann hefur beitt sér sérstaklega
gegn einkavæðingu og niðurskurði til
menntamála á alþjóðavísu og hefur í því
skyni lagt mikla áherslu á víðtækt og öflugt
samstarf kennara og menntunarstofnana,
foreldra, leiðtoga og almennings. Þá
er útrýming alnæmis að mati Thulas
eitt brýnasta baráttumál samtímans og
forvarnastarf í skólum til að fyrirbyggja
smit er eitt af sex forgangsverkefnum í
starfi EI á kjörtímabilinu.
Í ávarpi sínu á þinginu sagði Thulas
einnig: „Við trúum því að stækkun EI og
endurskipulagning hreyfingar stéttar-
félaga á hnattræna vísu færi okkur í
hendur þau tæki og tól sem við þurfum til
að efla baráttuna fyrir góðri menntun og
félagslegu réttlæti fyrir alla. Nú verðum við
að einbeita okkur að því að tryggja sömu
einingu í grasrótinni, land frá landi, og
styðja félagsmenn okkar í þessari baráttu
jafnt sem námsfólkið og samfélögin þar
sem við þurfum að sýna fram á efndir.“
Gróðinn vex og launin lækka
Aðilar frá mörgum samtökum og stofn-
unum ávörpuðu þingið auk Köhler og
Thulas og Jürgen Zöllner forseti þýsku
THULAS NXESI forseti EI
„Kennarar heimsins hafa aldrei staðið jafnt þétt saman og nú“
Mikill fjöldi kennara frá öllum heimshornum kom
saman í Berlín
Brjóta þarf niður háa múra sem hafa verið reistir
gegn jafnrétti til náms