Skólavarðan - 01.08.2007, Síða 18
18
Orlofshús – orlofshús!
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 7. ÁRG. 2007
um að árið 2015 hafi öll börn í heiminum
óhindraðan aðgang að skólamenntun
er ekki í augsýn. Til þess að slíkt verði
að veruleika vantar meðal annars 18
miljónir kennara svo sem fyrr er sagt.
Benda má á þá gríðarlegu mismunun að
í mörgum löndum eiga börn aðeins rétt á
fjögurra ára skólagöngu en skólagangan
í norðrinu nær 15-16 árum. Sú heimsálfa
þar sem vandamálin eru stærst og mest
er eftir sem áður Afríka. Jafnvel land eins
og Suður-Afríka sem hefur talsvert þróað
menntakerfi líður fyrir gífurlega hraða
aukningu á HIV smiti á meðal kennara og
nemenda. EI gagnrýnir Alþjóðabankann
og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn harðlega
vegna skorts á stefnu í málefnum Afríku á
9. og 10. áratugi síðustu aldar og ekki síst
vegna þess að þessir aðilar hafi ekki tekið
tillit til þarfa menntakerfisins í áætlunum
sínum heldur einblínt á peningamálin.
Þess má geta, þótt það væri ekki rætt á
þinginu, að jafnvel EFA hefur sætt ámæli
fyrir tvískinnung í markmiðssetningu sinni
og málflutningi sem þykir víða bera keim
af peningasjónarmiðum og þægð við
gróðasjónarmiðið.
Ríki verða að fjárfesta í menntun
Tilkynnt var á þinginu að EI hygðist
KENNARAR SEM VORU HEIÐRAÐIR Á ÞINGINU
Kennarar sem sæta ofsóknum vegna starfa sinna
HEIMSÞING KENNARA Í BERLÍN
Ernestine Raquel Samuel
Á heimsþinginu voru sam-
þykktar ályktanir um
eftirfarandi:
• Mannréttindabrot í Eþíópíu gegn
réttinum til að vera meðlimur
í stéttarfélagi. Kennarar hafa
þurft að þola pyndingar,
ofsóknir, fangelsun og líflát í
landinu árum saman.
• Mannréttindabrot í Ástralíu
gegn frumbyggjum en nýverið
sendi ríkið herinn til að hertaka
64 byggðir frumbyggja á
afskekktum slóðum.
• Samstöðu með íröskum kenn-
urum og öðrum launamönnum
sem hafa unnvörpum verið
drepnir og slasast í síendurteknum
árásum.
Á verkefnalista EI næstu árin
er m.a. eftirfarandi:
• Að verja 1,3 miljón evrum til
uppbyggingar lýðræðislegra
menntunarsamtaka í hinum
sk. STAN löndum (Úsbekistan,
Kasakstan o.s.frv.) og í Mið-
austurlöndum, í því skyni að
styðja við friðarferli.
• Að efla enn frekar alþjóðleg
samstöðuverkefni, styðja við
bakið á þeim sem berjast gegn
kúgun og hjálpa þeim sem lenda
í hörmungum á borð við stríð og
náttúruhamfarir.
• Að byggja á því sem þegar hefur
verið unnið í PISA og þróa eigin
mælitæki á góða menntun.
• Að halda áfram samvinnunni
innan samtakanna Global
campaign for education, Global
march against child labour og
halda áfram af fullum krafti
forvarnastarfi í gegnum menntun
gegn HIV smiti og alnæmi.
• Að efla hina nýju EI rann-
sóknastofnun svo að hún geti
skipað stórt hlutverk í að ná
markmiðum okkar bæði í norðri
og suðri.
„Þetta eru metnaðarfull og
yfirgripsmikil markmið sem við
teljum að muni skipta miklu máli
í lífi kennara og annarra mennta-
starfsmanna víða um heim,“ sagði
Thulas Nxesi. „Kennarar heimsins
hafa aldrei staðið jafn þétt saman
og nú og við erum staðráðin í að
gera okkar besta til að hvert einasta
barn fái almenna, sterka og stöðuga
gæðamenntun.“