Skólavarðan - 01.08.2007, Síða 19
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 7. ÁRG. 2007
setja fram og þróa eigin mælikvarða á
gæði menntunar sem munu standa við
hlið PISA og fleiri alþjóðlegra og fjöl-
þjóðlegra matstækja. „Góð menntun er
forgangsmál hjá okkur,“ sagði Fred van
Leeuwen framkvæmdastjóri samtakanna,
„og við eigum eftir að láta miklu meira
til okkur taka á sviði fagmennsku, kenn-
aramenntunar, námsgagnaþróunar og
rammagerðar um gæði menntunar.“
Leeuwen ítrekaði alvarleika kennaraskorts
og yfirvofandi versnandi ástand í þeim
efnum. „Við segjum ríkisstjórnum að
þær verði að fjárfesta í menntun og gera
kennarastarfið meira aðlaðandi til að forða
komandi kynslóðum frá þeim örlögum að
hljóta litla sem enga menntun. Hvernig
eigum við að gera starf aðlaðandi í hugum
ungs fólks,“ spurði Leeuwen, „sem sér
ekki fram á að geta látið enda ná saman
ef það tekur sér það fyrir hendur? Hvað
þá þegar unga fólkið veit fullvel að tekjur
þess verða mun hærri í einkageiranum?“
Fékk ekki vegabréf
Á hátíðarkvöldverði í þinglok voru þrír
kennarar heiðraðir fyrir störf sín, þau
Samuel Morales og Raquel Castro frá
Kólumbíu og Ernestine Akouavi Akakpo-
Gbofu frá Togo.
Morales og Castro voru fangelsuð
í ágúst árið 2004, Morales var nýverið
sleppt úr haldi en Castro situr enn í deild
fyrir pólitíska fanga í kvennafangelsinu í
Bogotá. Morales fékk ekki fararleyfi til að
sitja þingið. EI og Amnesty International
hafa farið fram á við kólumbísk yfirvöld
að þau tryggi öryggi beggja kennaranna
og fjölskyldna þeirra og virði alþjóðalög
um vinnurétt. Kólumbía hefur lengi verið
eitt af hættulegustu löndum í heimi fyrir
þá sem taka þátt í starfsemi stéttarfélaga.
Í fyrra voru að því er talið er 33 kennarar
teknir af lífi í Kólumbíu.
Akakpo-Gbofu er leikskólakennari sem
hefur unnið ötullega í tæpa þrjá áratugi að
uppbyggingu góðrar leikskólamenntunar
í heimalandi sínu, Togo. Hún er ein af
stofnendum samtaka leikskólakennara í
Togo og hefur þróað frábær námsgögn
sem hvarvetna vekja athygli, en skortur á
leikföngum og almennum námsgögnum
er mikill í landinu.
Næsta heimsþing EI verður haldið í Suður-
Afríku eftir fjögur ár.
keg
19
HEIMSÞING KENNARA Í BERLÍN