Skólavarðan - 01.08.2007, Blaðsíða 26
26
FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 7. ÁRG. 2007
Auglýsing um úthlutun
styrkja úr C deild
Vísindasjóðs FL
Hér með eru auglýstir styrkir sem veittir
eru félagsmönnum FL. Annars vegar
til þróunar- og rannsóknastarfa og til
námsefnisgerðar. Hins vegar einstökum
félagsmönnum eða hópum félagsmanna,
faghópum og nefndum innan FL til að
halda námskeið og ráðstefnur ætlaðar
félagsmönnum. Í umsókn þarf að koma
fram:
• Heiti verkefnis.
• Lýsing á verkefni, markmið þess og
gildi.
• Lýsing á framkvæmd verkefnis.
• Upplýsingar um umsækjanda/endur,
s.s. menntun og starfsferill.
• Kostnaðaráætlun.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum
eyðublöðum sem fást á skrifstofu FL/KÍ
og á heimsíðu www.ki.is í síðasta lagi 15.
september 2007.
Reykjavík 11. ágúst 2007,
Stjórn Vísindasjóðs FL.
Til félagsmanna í
framhaldsskólum
Ágætu, framhaldsskólakennarar -
velkomnir til starfa!
Félagið vill minna þá formenn kennara-
félaga framhaldsskóla sem ekki hafa
sent endurskoðaða stofnanasamninga
samstarfsnefnda skólanna frá 1. maí 2007
að gera það hið fyrsta. Sendið á netfangið
adalheidur@ki.is
Félagið minnir einnig á vefinn ff.ki.is í
þessu sambandi. Undir heitinu „Kjaramál“
er hægt að skoða stofnanasamninga
framhaldsskólanna.
Félag framhaldsskólakennara
Á 50 ára afmæli Félags leikskólakennara 6. febrúar árið 2000 voru tveir
félagar gerðir að heiðursfélögum fyrir áratuga framlag sitt til leikskólamála.
Annar þeirra var Gyða Sigvaldadóttir. Gyða lést þann 11. júlí sl. 89 ára að
aldri. Hún fæddist 6. júní 1918 á Brekkulæk í Miðfirði.
Gyða útskrifaðist frá Uppeldisskóla Sumargjafar 4. febrúar 1950 og var í þriðja
hópnum sem skólinn útskrifaðist. Hún, ásamt sjö öðrum félögum, hélt því upp
á 50 ára útskriftarafmæli sitt á 50 ára afmæli stéttarfélagsins. Gyða var ein
af frumkvöðlunum í stétt leikskólakennara og hún var órög við að taka upp
nýjungar. Hún var t.d. ein af þeim fyrstu til að koma á formlegu samstarfi við
foreldra og lagði alltaf mikla áherslu á mikilvægi þess til að tryggja velferð
barnanna sem best. Einnig var Gyða þekkt fyrir að leggja rækt við íslenska
tungu og menningu og miðla þeim arfi til komandi kynslóðar með fjölbreyttum
hætti.
Gyða tók virkan þátt í uppbyggingu leikskóla á vegum Barnavinafélagsins
Sumargjafar í Reykjavík og starfaði lengst af sem leikskólastjóri í Reykjavík.
Hún lét af störfum 70 ára að aldri árið 1988. Það sama ár var hún sæmd
Fálkaorðunni.
Gyða var mikill jafnréttissinni og tryggur málsvari þeirra sem minna mega sín í
samfélaginu, sérstaklega barna og ungmenna. Þeim vettvangi kynntist hún m.a.
þegar hún var um tíma forstöðukona á Silungapolli sem þá var upptökuheimili
á vegum borgarinnar og jafnframt á Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins. Gyða
sat í barnaverndarnefnd Reykjavíkurborgar 1962 – 1966.
Á meðan kraftar leyfðu fylgdist Gyða vel með því sem efst var á baugi í
málefnum leikskóla og barna, þar með talið starfsemi Félags leikskólakennara.
Til minningar um Gyðu hefur félagið fært Rannsóknasjóði leikskóla gjöf, en
hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir á leikskólastarfi.
Björg Bjarnadóttir
Haustþing
svæðafélaga FG
Fyrsta haustþing svæðafélaga Félags
grunnskólakennara var þing Kennara-
sambands Vestfjarða (KSV) sem haldið
var þann 23. ágúst á Þingeyri. Önnur
svæðaþing verða haldin sem hér segir:
• Kennarasamband Austurlands (KSA)
14. september á Djúpavogi
• Kennarafélag Vesturlands (KFV)
15. september. Staðsetning óstaðfest
• Kennarasamband Suðurlands (KS)
20. og 21. september á Flúðum
• Sameiginlegt haustþing Bandalags
kennara á Norðurlandi eystra (BKNE)
og Kennarasambands Norðurlands
vestra (KSNV) 21. september á
Akureyri
• Kennarafélag Vestmannaeyja (KV)
28. september í Eyjum
Pasi Sahlberg á
námstefnu SÍ í
október
Árleg námstefna Skólastjórafélags Íslands
og aðalfundur félagsins verða haldin
föstudaginn 12. og laugardaginn 13.
október nk. í Reykjanesbæ. Aðalfyrirlesarar
á námstefnunni verða tveir:
1) Finninn Pasi Sahlberg sem hefur bæði
reynslu úr skólakerfinu og atvinnulífinu.
Pasi Sahlberg hefur starfað sem Director
of the Center for School Development
at the University of Helsinki og sem
sérfræðingur við Alþjóðabankann í
Washington. Þá hefur hann skrifað
mikið um skólamál.
2) Katrín Frímannsdóttir sem verður með
fyrirlestur um innra mat skóla.
Einnig verður fjallað um samstarf
Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ
(FG/SÍ) í tengslum við bókanir 2.1 og 2.2
í fylgiskjali með samkomulagi vegna
gr. 16.1 í kjarasamningnum. Venjuleg
aðalfundarstörf fara fram á aðalfundinum.
Námstefnan og aðalfundurinn verða
auglýst nánar í næsta tölublaði
Skólavörðunnar.
Skólastjórafélag Íslands
Minning um
heiðursfélaga FL