Skólavarðan - 01.08.2007, Page 27
Er tilfinningaþroski mikilvægur fyrir velgengni í lífinu?
Þarft þú að vinna með hegðun nemenda þinna á komandi
skólaári?
Viltu kenna þeim jákvæða samskiptahætti?
Stig af stigi er kennsluefni fyrir leik- og grunnskóla til að efla félags- og
tilfinningaþroska barna á aldrinum 4-10 ára.
• Kennarar sem nota viðurkenndar aðferðir við að kenna börnum félagslega hegðun þurfa
sjaldnar að fást við hegðunarerfiðleika en aðrir.
• Mikilvægur grunnur að samskiptafærni barna er lagður í leikskólum og strax þar mótast venjur
sem leiða til hegðunar– og aðlögunarvanda í grunnskóla.
• 6 af hverjum 10 kennurum í grunnskóla kenna nemendum sem eiga við hegðunar– og
aðlögunarvanda að stríða.
• Stig af stigi inniheldur efni til þriggja ára kerfisbundinnar vinnu að auknum félags- og
tilfinningaþroska barna.
• Endurteknar rannsóknir í fjölda landa hafa sýnt að vinnan með Stig af stigi skilar miklum
árangri í bættri líðan og hegðun barna.
Útgefandi og söluaðili: Reynir-ráðgjafastofa, Tryggvabraut 22, 2.h, 600 Akureyri. Sími 460 9500
netfang: kristjan@reynismenn.is. Stig af stigi á netinu. www.reynismenn.is