Skólavarðan - 01.08.2007, Page 30

Skólavarðan - 01.08.2007, Page 30
30 SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 7. ÁRG. 2007 efnum og ástæðu til að reyna að greina vandann betur og bregðast við, þar sem meira að segja þeir sem eru félagsmenn taka æ minni þátt í stéttarfélagsstarfi og halda ekki á lofti málstað menntunar og kennslu. Hún ræddi þessu næst um neikvæða ímynd stéttarfélaga og jafnvel stéttarinnar í fjölmiðlum eða út á við og það hvernig okkur kennurum er ýtt út í vörn fremur en að sótt sé fram. Í þriðja lagi ræddi Eva-Lis um áhrif samfélagsbreytinga og alþjóðavæðingar á fagstéttarfélögin og viðhorf félagsmanna til þátttöku í starfi þeirra. Heimur kennaranema og ungra kennara er gjörbreyttur að hennar sögn hvað varðar lífsreynslu og þekkingu á öðrum löndum og menningarheimum. Þeir eru líka illa upplýstir um þá staðreynd að vinnumarkaður kennara afmarkast ekki lengur af eigin þjóðlöndum heldur þarf undirbúning til að færa þekkingu sína og vinnukrafta á milli landa og heimsálfa. Í fjórða og síðasta lagi ræddi formaðurinn um samskiptahætti fagstéttarfélaga út á við og innan eigin raða. Það þarf að ræða við félagsmennina en ekki tala yfir hausamótunum á þeim, sagði Eva-Lis, og í umræðu í samfélaginu þarf að ræða miklu meira um hvað við viljum gera, fá og breyta og minna um það sem við ekki viljum, það er: færa umræðuna úr vörn í sókn. Önnur málefni sem unnið er að samkvæmt fyrri ákvörðunum stjórnar NLS 1. Nýbúar og menntakerfið og fjöl- menningarleg færni kennara er málefni sem byrjað var að ræða á haustfundi stjórnar NLS í Reykjavík 2006. Hvert land lagði fram skýrslu um ástandið í sínu heimalandi og voru löndin komin misvel á veg að greina stöðu nemenda með annað móðurmál en viðkomandi lands, m.a. þarf Ísland að fylla meira út í sinn hluta. Frá fundi grunnskólasektors NLS í mars sl. bárust tíu tillögur um aðgerðir til að efla menntun nýbúa og vinna gegn útilokun þeirra í samfélaginu og voru þær birtar með skýrslunni. Lillemor Darinder framkvæmdastjóri NLS flutti erindi um málið og ræddi m.a. möguleika á kynningar- og útbreiðslustarfi um þetta efni. Bent var á tvær ráðstefnur sem haldnar voru nýverið í Kanada og Tromsö, „No more failures“ og „10 steps to equity“. Meðal þeirra sem tóku til máls undir þessum dagskrárlið var Anders Bondo Christensen formaður dönsku kennarasamtakanna DLF meðal þeirra sem tóku til máls. Fram kom í máli hans að Svíum gangi mun betur að styðja nýbúa en Dönum, bæði í skólakerfinu og þjóðfélaginu almennt. 2. Sjálfsmat og tengsl starfsþróunar kennara og sjálfsmats er annað þema sem vinnuhópur frá fjórum af aðildarlöndum NLS hefur unnið að. Fyrir stjórnarfundinum lágu fyrst og fremst skýrslur einstakra félagaeða landa, þ.m.t. Íslands, en umræðan snerist mest um mat og sjálfsmat í víðum og mismunandi skilningi og tengsl þess við aukna fagmennsku og sjálfstæði kennara í starfi. Einnig var rætt í þessu samhengi um tilhneigingu í löndunum til meiri ofanstýringar og miðstýringar á störfum kennara, námi og námsmati, trú og oftrú á mati og mælingum og öfugum áhrifum sums af þessu á sjálfstæði í starfi kennara og í framhaldinu á starfsánægju þeirra. Elna Katrín Jónsdóttir. Formenn svæðafélaga funduðu nýverið í Kennarahúsinu og báru saman bækur sínar um veturinn framundan og sögðu frá því sem gerst hefur síðan á síðasta formannafundi í maí sl. Neðri röð frá vinstri: Hildur Jórunn Agnarsdóttir formaður Kennarasambands Austurlands (KSA) og varamaður í stjórn FG, Helga Tryggvadóttir varaformaður KennarafélagsVestmannaeyja og sitjandi formaður í fjarveru Dóru Bjarkar Gunnarsdóttur, Jónella Sigurjónsdóttir formaður Kennarasambands Suðurlands (KS), Ásta Ólafsdóttir í stjórn FG og KÍ. Efri röð frá vinstri: Ólafur Loftsson formaður FG og í stjórn KÍ, Þorgerður Laufey Diðriksdóttir formaður Kennarafélags Reykjavíkur (KFR) og varamaður í stjórn FG, Sturla D. Þorsteinsson formaður Kennarafélags Reykjaness (KR), Sigurður Haukur Gíslason formaður Kennarafélags Mosfellsbæjar, Seltjarnarness og Kópavogs (KMSK) og í stjórn FG, Daníel Freyr Jónsson formaður Bandalags kennara á Norðurlandi eystra (BKNE), Þórður Á. Hjaltested varaformaður FG og í stjórn KÍ, Sigurður Þór Ágústsson formaður Kennarasambands Norðurlands vestra (KSNV) og Örn Arnarson formaður Kennarafélags Vesturlands (KFV). Á myndina vantar einn af stjórnarmönnum FG og einn formann svæðafélags. Hverjir eru það? Sendu svarið á kristin@ki.is fyrir 10. september og hver veit nema þú fáir verðlaun. Formenn svæðafélaga í Félagi grunnskólakennara funda Þekkirðu þitt fólk? ERLENT SAMSTARF, GETRAUN

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.