Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Síða 3

Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Síða 3
AFMÆLISRIT F.U.J. 1928 - HAFNARFIRÐI - 1938 Takmark F. U. J. Eítir núvcrandi iormann félagsins, Svein V. Stcfánsson. Á slíkum tímamótum sem þessum, verða menn að gexa upp við sjálfa sig, meta það og vega, hvað áunnizt hefir á þessum síðastliðnu 10 árum, hvort starf- semin hefir staðið í stað, miðað nokkuð áfram eða gengið til baka. í þessu sambandi er þá fyrst að geta þess, að F. U. J. félagsskapurinn er til orðinn fyrir áhrif samskonar æsku- lýðssamtaka á Norðuriöndum, sem og fyrir knýjandi nauðsyn hér heima fyrir. Fyrsta F. U. J. félagið var stofnað af nokkurum áhugasömum unglingum í Rvík fyrir iiðugum 10 árum, eða 8. nóv. 1927. Þessi ungjafnaðarmannahreyfing liefir svo vaxið og blómgast svo að segja um allt land. En með hvaða hætti hafa svo þessi samtök þróazt? Fyrst er að svara því, að þörfin fyrir slík samtök var fyrir í rík- um mæli. Alþýðuæskan hafði hvergi höfði sínu að að halla, hennar fyrsta verkefni var því að bindast samtökum, samtökum sem hún gat alizt upp í, fé- lagsskap, sem æskan sjálf hafði skapað og sem svo skyldi verða hennar skjöld- ur og skjól, gegn hverskonar árásum og blekkingum íhaldsaflanna í landinu. Þessi stefna hinnar íslenzku verka- lýðsæsku hefir orðið til þess, að vekja margt ungmennið til meðvitundar um það, að ekkert annað meðal er betra gegn yfirgangi Fasismans, versta óvini, sem æskulýður allra landa á yfir höfði sér. Þetta eru fyrst og fremst ástæð- urnar fyrir því, að ungmennin, sem jafnan fóru með skarðan hlut frá borði, sköpuðu sér sín eigin samtök. F. U. J. í Hafnarfirði, sem á því láni að íagna, að geta nú minnzt 10 ára starfsemi sinnar, hefir verið traustur hlekkur í þeirri keðju, sem alþýðusam- tökin hafa verið tengd með hér á landi. í þau tíu ár, sem félagið hefir starf- að, hefir það með ári hverju bætt við sig nýjum meðlimum, sem þýðir það að fleiri og fleiri verða þess aðnjótandi, að fá fræðslu um socialismann, um leið og þeir þroska sjálfa sig andlega og gera sig hæfa til þess að verða sam- keppnisfæra í lífsbaráttunni. Hver æskumaður, sem hefir sæmilega þroskaða hugsun, gengur þess ekki dul- inn, að hans biður fjöldi verkefna, sem þurfa úrlausnar með. Fjöldinn af þeim verkefnum, sem framundan eru, verða

x

Afmælisrit F.U.J.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisrit F.U.J.
https://timarit.is/publication/1183

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.