Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Blaðsíða 16

Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Blaðsíða 16
AFMÆLISRIT F. U. J. 14 Kveðja Srá S. U. J. Pétur Halldórsson Árið 1927 fór fyrst að byrja að verða vart almenns áhuga meðal æskumanna um stofnun stjórnmálafélaga ungra manna og kvenna. Voru það ungir jafn- aðarmenn í Reykjavík, sem voru með fyrstu brautryðjendum á því sviði. í kjölfar þeirra sigldu síðan ungir jafnað- armenn í Hafnarfirði skömmu eftir áramótin 1928 og var það annað F. U. J. félagið, sem stofnað var á þessu landi. Margir áhugasamir ungir jafnaðar- menn stóðu að þessari félagsstofnun og lögðu þar með fram fórnfúst starf í þágu starfseminnar, enda lét F. U. J. í Hafnarfirði þegar mikið til sín taka um félagsmál og varð á skömmum tíma til- tölulega öflugt, miðað við stærð bæj- arins. Þegar Samband ungra jafnaðar- manna var stofnað, var F. U. J. í Hafn- arfirði einn stofnandinn og hefir á- valt síðan verið í sambandinu og tekið mjög virkan þátt í starfi þess og stefnu, enda hefir það síðan verið sterkasti að- ilinn, sem að Sambandinu hefir staðið, næst F. U. J. i Reykjavík, og tók þvi á tímabili á ýmsan hátt fram í félags- starfseminni. Starfsemi F. U. J. í Hafnarfirði verð- ur seint fullþökkuð af S. U. J. Allir þeir ungu æskumenn og konur, sem beint og óbeint hafa þar lagt hönd á plóginn, hafa reist sér minnisvarða, sem seint ætti að gleymast. Vonandi fjölgar þeim árlega, sem þannig vilja stuðla að því að samtök ungra jafnaðarmanna eflist, og um leið vinna að útbreiðslu og sigri socialismans. Það er gleðilegt að sjá að starfsemi félagsins hefir eflzt all verulega í stjórn- artíð núverandi stjórnar og vonandi verður gæfuríkt framhald af því starfi. S. U. J. á engar heitari óskir en að starfsemi F. U. J. í Hafnarfirði megi takast sem allra bezt og að það fram- vegis skipi eigi lakari sess innan S. U. J. en það hefir gert á undanförnum árum, og þökkum þvi jafnframt það mikla og fórnfúsa starf, sem það hefir lagt fram í þágu hinnar socialistisku æskulýðsstarfsemi. Pétur Halldórsson.

x

Afmælisrit F.U.J.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisrit F.U.J.
https://timarit.is/publication/1183

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.