Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Blaðsíða 6

Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Blaðsíða 6
AFMÆLISRIT F. U. J. 4 Emil Jónsson þeim tíma hefur glatazt. Þaö er þó auö- séð, að stofnendurnir hafa gengiö ó- trauöir til starfa. Framan af eru fundir haldnir hálfsmánaöarlega, og segir Páll Sveinsson, sem þá var ritari félagsins, svo frá í minningargrein í afmælisriti F. U. J. 1934, að varla hafi þá komið fyrir sá fundur, að ekki hafi allir félags- menn verið mættir. Er þetta vottur um mikinn áhuga á starfsemi félagsins. En heldur virðist hafa dregið úr fjöri þess árið 1929. Félagiö gerði sér þegar far um að veita meðlimum sínum fræðslu um ýms atriði jafnaðarstefnunnar og fleiri efni. Voru erindi flutt á mörgum fundanna. Sum fluttu félagsmenn sjálfir, önnur voru flutt af mönnum úr F. U. J. í Reykjavík eða mönnum utan félaganna. Jafnframt þessu hóf félagið ýmiskon- ar skemmtistarfsemi fyrir meðlimi sína. Þannig stóð það fyrir almennri skémmtisamkomu haustið 1929, og um fleiri svipaðar samkomur var rætt, en Guðm. Guðmundsson ekki verður séð hvaö úr framkvæmdum hefur orðið. Ekki má ganga þegjandi fram hjá þeim þætti, sem ýmsir félagsmenn í F. U. J. í Reykjavík áttu í að efla og auka starfsemi félagsins í Hafnarfirði. Þeir komu mjög oft á fundi félagsins, fluttu þar erindi og tóku fjörugan þátt í umræðum. Einkum voru þeir Vilhjálm- ur S. Vilhjálmsson og Árni Ágústsson tíðir og velkomnir gestir hjá félaginu á þessum árum. Heldur fjölgaði í félaginu tvö fyrstu árin, en hvorki var sú fjölgun ör né mikil. í ársbyrjun 1930 eru félagsmenn taldir 27. Þær einar breytingar urðu á stjórn félagsins á þessu tímabili, að Guðjón Gíslason tók við gjaldkerastörfum í okt- óber 1928 af Ólafi Þórðarsyni, er þá fór til náms til Noregs. Og um haustið 1929 fékk formaður félagsins, Guðm. Gissur- arson, skólastjórastöðu í Grindavik og íluttist þangað, og var þá Frímanni Ei-

x

Afmælisrit F.U.J.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisrit F.U.J.
https://timarit.is/publication/1183

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.