Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Side 5
3
AFMÆLISRIT F. U. J.
mundur Gissurarson, Guðmundur I.
Guðmundsson og Páll Sveinsson. Guð-
mundur Gissurarson og Páll Sveinsson
höfðuþá fyrir skömmu lokið námi við
Kennaraskólann og störfuðu að barna-
kennslu hér i bænum, en Guðmundur
Guðmundsson stundaði nám við
Menntaskólann í Reykjavík.
Stofnfundur P. U. J. í Hafnarfirði var
haldinn sunnudaginn 12. febrúar 1928
í Bæjarþingsalnum, og sóttu hann um
20 manns. Páll Sveinsson setti fundinn
og skýrði frá tilgangi hans. Síðan töluðu
hinir fundarboðendurnir, Guðm. I. Guð-
mundsson og Guðm. Gissurarson.
Af öðrum fundarmönnum tóku til
máls á þessum fyrsta fundi félagsins
þeir Emil Jónsson, Helgi Sigurðsson og
Ólafur Þórðarson. Fundarstjóri var
Finnbogi Hallsson.
16 menn gerðust stofnendur félagsins
á þessum fundi, en á framhalds-stofn-
fundi, sem haldinn var viku síðar, bætt-
ist einn maður í hópinn, svo að stofn-
endurnir urðu alls 17. Þeir voru þessir:
Alexander Guðjónsson, vélstjóri.
Ámundi Eyjólfsson, bílstjóri.
Benedikt Guðmundsson, skipstjóri.
Emil Jónsson, vitamálastjóri.
Finnbogi Hallsson, trésmiður.
Gísli Ásmundsson, bryti (látinn).
Guðjón Gíslason, verkamaður.
Guðm. Gissurarson, varabæjarstjóri.
Guðm. I. Guðmundsson, málfl.maður.
Helgi Sigurðsson, verkamaður.
Jóngeir Davíðsson, sjómaður.
Ólafur Þórðarson, símamaður, Rvík.
Páll Sveinsson, kennari.
Sigurður Grímsson, sjómaður.
Sigurður Magnússon, kennari, Rvík.
Valdim.'Hildibrandsson, verkam., Rvík.
Þóroddur Gissurarson, verkamaður.
Flestir þessara manna eru ennþá
virkir og dugandi starfsmenn í samtök-
um alþýðunnar.
Bráðabirgðastjórn fyrir félagið var
kosin á þessum fundi: Guðm. Gissurar-
son, formaður, Páll Sveinsson, ritari, og
Ólafur Þórðarson, gjaldkeri.
Lög félagsins, sem samþykkt voru á
framhaldsstofnfundinum, 19. febr., finn-
ast nú ekki í plöggum félagsins. Þess
vegna er ekki unnt að birta hér stefnu-
skrá þá, sem stofnendur þessa nýja fé-
lags settu sér og félagsskap sínum. En
aðaltilgangur þeirra með félagsstofnun-
inni var að vinna jafnaðarstefnunni
fylgi meðal ungra manna í Hafnarfirði.
Þeir hugðust ekki gera það með gný og
gauragangi, auglýsingum og æsingum,
heldur með rólegu og markvissu starfi.
Þeir ætluðu að stofna einskonar forustu-
sveit, sem legði kapp á að kynna sér sem
bezt kenningar jafnaðarstefnunnar og
æfði sig og þroskaði eftir mætti í félags-
legu samstarfi. Síðan hefðu þessir menn
áhrif á skoðanir kunningja sinna utan
félagsskaparins og mótuðu starfsemi
og stefnu þess félagsskapar annars, sem
þeir kynnu að starfa í. Og það hefir farið
svo, þótt ekki séu liðin nema 10 ár síðan
félagið var stofnað, að úr röðum félags-
manna þess hafa þegar komið menn,
sem hafa skipað ábyrgðarmestu stöður
Alþýðuflokksins og verklýðsfélaganna
hér í bæ. Nægir þar að nefna Emil Jóns-
son, Guðm. Gissurarson og Helga Sig-
urðsson.
Fyrstu árin.
Saga félagsins fyrstu árin verður ekki
rakin eins rækilega og vert væri, því að
fleira eða færra af fundargerðum frá