Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Page 17
15
AFMÆLISRIT F. U. J.
Hlutverk F. U. J.
Undirbúníngsskóli iyrir starfið i Alpýðuflokknum
Ég átti nokkurn þátt í stofnun F. U.
J. í Hafnarfirði og vil því gjarna við
þetta tækifæri mega senda gömlum og
nýjum félögum kveðju og heillaóskir.
10 ár eru alls ekki langur tími í æfi
félagsskapar, en 10 fyrstu árin hafa
mörgu félaginu reynzt erfið og það
telja félagsvanir menn. að ef félags-
skapur lifi fyrstu 10 árin af, þá lifi hann
lengi.
Ég held nú að verstu erfiðleikarnir í
æfi F. U. J. i Hafnarfirði hafi verið
fyrstu 3 árin. Það gekk þá oft erfiölega
að halda lífi í félaginu og í raun og
veru voru það að eins 7 félagar, sem allt-
af héldu tryggð við það og hugsjónir
þess og man ég þar sérstaklega eftir
Páli Sveinssyni, Guðjóni Gíslasyni og
Stefáni Júlíussyni. Við komum oft fé-
lagarnir að sunnan á fundinn og þá^
voru þessir félagar allt af viðstaddir,
að eins einn þeirra talaði á fundum, en
ég fann þá að alþýðuhreyfingin í Hafn-
arfirði myndi eiga góða von í hinum
tveimur ekki síður.
En það var ekki til að minnast félaga,
að ég skrifa þessar fáu línur.
Aðalatriðið í starfi ungra Alþýðu-
flokksmanna á að vera og var frá upp-
hafi ætlað að vera fræðslu- og menn-
ingarstarf meðal alþýðuæskunnar til að
undirbúa hana undir starfið fyrir
verkalýðshreyfinguna og Alþýðuflokk-
inn. Þetta hefir að ýmsu leyti tekizt og
þó ekki nærri eins og skyldi. Þegar á að
dæma um árangurinn af þessu starfi
verður að líta til atburða, sem gerzt
hafa innan samtakanna og hvaða af-
stöðu F. U. J. félagarnir hafa tekið til
þeirra. Hafa þeir staðið berskjaldaðir
fyrir augnablikshreyfingum? Hafa þeir
staðið fast á grundvelli Alþýðuflokksins
sem raunhæfir, rökfastir bardagamenn?
— Það er F. U. J. í Haínarfirði til hróss,
að ekkert F. U. J. á landinu stóð eins vel
af sér sundrung kommúnista 1930.
Barátta verkalýðsins fyrir sköpun
socialisma og jafnréttis allra krefst sí-
felds starfs — og þar veltur minnst á
slagorðunum, heldur allt á hinni dag-
legu þrautseigu baráttu og framar öllu
öðru tryggist hún á því, að hvert mál sé
vel hugsað áður en það er framkvæmt.
Um þetta atriði getur ungt Alþýðu-
flokksfólk í Hafnarfirði sótt gleggstu
dæmin í sögu Verkamannafélagsins
Hlíf. Getur það, efti'r að hafa kynnt
sér þá sögu, gert sér í hugarlund hvílík
bylting hefir farið fram frá þeim tíma
er atvinnurekandinn bannaði Hlífarfé-
lögum að ganga stiginn heim að fund-
arhúsinu, af því að hann átti stiginn og
til þessa dags.
Slíkar byltingar eru hinar raunveru-
legu byltingar og með slíkum bylting-
um vinnur verkalýðurinn mest.
V. S. V.