Félagsbréf - 01.12.1962, Qupperneq 32
28
FÉLAGSBRÉF
af svefni til að kyrkja konu sína sofandi við hlið sér, — má ekki vera að þessir
menn fylgi fram leynilegum úrskurði Félagsins? Þögult framferði þess, sam-
bærilegt við guðsvegu, vekur upp margháttaðar getsakir. Samkvæmt einni sví-
virðilegri tilgátu hefur Félagið ekki verið við lýði svo öldum skiptir og hin
helga ringulreið í lífi okkar er aðeins arfur og bundin af hefð; önnur hermir
að Félagið sé eilíft og standi til dómsdags þegar síðasti guðinn útmái veröld;
enn önnur að Félagiö sé að vísu almáttugt en áhrifa þess gæti aðeins í hinum
lítilvægustu sökum, fuglsgargi, litnum á ryki eða ryði, vökudraumum í dag-
renningu. Fyrir munn grímubúinna trúvillinga segir ein getgátan að Félagið hafi
aldrei veriS til og verSi aldrei til. Og enn ein, álíka lítilmótleg, hermir að tilvera
þessa huldufélags skipti engu máli til eða frá með því að Babýlónía sé ekki
nema óendanlegur leikur hendingar.
ó. J. þýddl.
Jorge Luis Borges er ArgentmumaSur, fæddur 1899. Hann gerðist snemma fjölmenntaoai
í bókmenntum og heimspeki — meðal eftirlætishöfunda hans eru Schopenhauer, Hume,
Robert Louis Steivenson og G. K. Chesterton — og birti fyrstu ljóð sín um 1920 er hann
hafði dvalizt um sinn í Sviss og á Spáni. Borges var lengi bókavörður á Landsbókasafninu
í Buenos Aires unz perónistar viku honum úr þeirri stöðu. Fór hann síðan huldu höfði u/n
sinn, enda vofði handtaka yfir honum; og á þessum árum urðu flestar sögur hans til. —
Sögur Borges eru fáar talsins og allar stuttar, en mjög hnitmiðaðar í stíl og byggingu „Frum-
spekileg ævintýr" mætti kalla þessar sögur, sem ýmist gerast aftur í furðulegri fortíð
eða nú á dögum, í Babýlóníu, eða Buenos Aires. Á seinni árum hefur Borges vakið síaukna
athygli í Evrópu og sögur hans verið þýddar víða. í fyrra hlaut hann hin alþjóðlegu For-
mentor-verðlaun. — Sagan sem hér birtist er þýdd úr ensku.