Félagsbréf - 01.12.1962, Qupperneq 40

Félagsbréf - 01.12.1962, Qupperneq 40
36 FÉLAGSBRÉF skýra þennan gang sögnnnar, sérstak- lega þegar litið er á aukið raunhæft samstarf og fjölgun persónulegra kynna milli þjóðanna. Samt sem áður er skýringin sáraein- föld: Við stöndum andspænis fyrstu greinilegu áhrifunum af hinu menning- arlega miðsóknarafli stórveldanna, hægfara hernámi norræns hugarfars og hinnar sérstöku norrænu menning- ar af hálfu umheimsins. Alla 19. öld og enn um aldamót og fram að fyrri heimsstyrjöld' var hin andlega heimsmynd Norðurlandabúa norrœn. Sambandið við umheiminn var lítið, tungumálakunnáttan var heldur ekki mikil. Þeim litla tíma, þreki og áhuga, sem menntað fólk hafði aflögu, þegar það hafði lokið að melta bók- menntir og listir heimalandsins, var eðlilegt að verja til að sinna framlagi grannþjóðanna. í þann tíð héldu einnig hinir fremstu andans menn okkar saman. Stórskáldin dvöldust gjarna langdvöl- um í Kaupmannahöfn, Berlín, París, Miinchen og Róm. Þar mynduðu þau norrænar nýlendur, stofnuðu til varan- legrar vináttu og hófu mikilsverð og ævilöng bréfaskipti. Þetta hafði áhrif á bókmenntirnar og blöðin í löndum þeirra, og þar með á lesendur almennt. Tengsl ríkjanna kunna einnig að hafa haft hagstæð áhrif, að minnsta kosti átti það við um sum löndin. Norsk- sænska sambandið gegndi að vísu ekki miklu menningarhlutverki, en annað átti sér stað um hið dansk- norska samfélag tungunnar — ritmál okkar var þá — að hinu nýja lands- máli undanskildu — í reyndinni eitt og hið sama. Sjálfur las ég í æsku minni nær eingöngu danskar barnabæk- ur. I Finnlandi, sem þá var rússneskt amt, var sænska leiðin til vesturs og æðri menntunar, og finnskar bókmennt- ir höfðu þá enn ekki hlotið þá þjóð- legu endurlausn sem síðar varð. — Andlegt líf á Islandi átti sér norræna skiptimiðstöð í Kaupmannahöfn. Ibsen, Strindberg og Brandes voru norræn sameign. Jafnvel á þriðja tug aldarinnar — þegar hugsjónir Norrænu félaganna voru mótaðar — hlýtur þessi norræna menningarsæla að hafa verið lifandi í hugum margra- Þeir sem hugsuðu langt fram í tímann, hafa vafalaust séð, að heimurinn stefndi stöðugt í átt til síaukins samruna. En þeir hafa spaklega spáð sem svo: Þróunin verð- ur stig af stigi. Fyrst mun norræn menningarvitund þróast í menningar- lega samkennd, sem nær til allra Norðurlanda, og að því er Danmörku, Noreg og Svíþjóð varðar myndast sameiginlegur bókmenntamarkaður. — Þegar þessu stigi er náð, munu Norður- lönd ganga til móts við stöðugt stærri heimsheildir, sem sameinað, andlegt stórveldi. Hver hugsandi menntaskóla- nemi mun reyndar þekkja þessa for- skrift að siðfræðilegri þróun hins stað-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.