Félagsbréf - 01.12.1962, Blaðsíða 41
FÉLAGSBRÉF
37
bundna og þjóðlega anda til nióts við
hið algilda.
En hversu skaplegur og spaklegur
sem þessi spádómur hefur verið, hefur
hann hvorki reynzt nógu skarplegur
né spaklegur.
Þetta átti nefnilega eftir að fara á
annan veg. Við urðum of seinir til.
Við misstum af strætisvagninum. Við,
höfðum tafið fyrir norrænni samstöðu
með sjálfstæðisbaráttu okkar, og er við
loks vorum reiðubúnir að taka þátt í
sameiginlegum menningarmarkaði með
fullgildum framlögum, — þegar öll-
um hinum ytri skilyrðum var fullnægt
til sköpunar einlægri, norrænni ætt-
rækni, virtist orrustan töpuð.
í dag keppa Norðurlönd og umheim-
urinn um hug Norðurlandabúans, og
Norðurlönd hafa, að minnsta kosti í
bili, beðið lægra hlut. Norðurlönd og
umheimurínn urðu ekki, eins og við
beldum, tveir áfangar á sömu leið,
he dur tveir kostir að velja á milli.
Við höfum hvorki nægan tíma né
áhuga aflögu til að sinna bæði hinu
þjóðlega, hinu norræna og hinu alþjóð-
ies;a. Hið norræna verður útundan.
Þetta er orðið vandamál um sálarrými.
Svo viróist sem við munum menningar-
lega séð stÖKkva yfir hið norræna þrep
í þróuninni-
Hin fjölmennu tungumálasamfélög
með 100 til 300 millj. manna geta
framleitt menningarefni fyrir gjafverð.
Hér hefur tæknibyltingin skapað smá-
þjóðunum áður óþekkt menningar-
vandamál. Að minnsta kosti fimmtíu
þúsund fjölskyldur í Danmörku, Noregi
og Svíþjóð svala allri lestrarfýsn sinni
með enskum bókum í ódýrum útgáfum.
Og þessi fjöldi eykst ár frá ári með vax-
andi fræðslu í erlendum málum. Þetta
ár munu Svíar hefja kennslu í ensku í
4. bekk barnaskóla, í Noregi fáum við
4ra ára skyldunám í ensku í „grunn-
skolen“, tilhneigingin er hin sama í
öllum löndum og við gleðjumst yfir
þessu.
En þetta bitnar fyrst og fremst á
lestri bóka frá nágrannalöndunum og
áhuganum á bókmenntum og andlegu
lífi Norðurlanda. í næsta áfanga mun
þróunin og opnunin mót umheiminum
einnig takmarka hinn þjóðlega bók-
menntamarkað. Vítahringurinn er haf-
inn: erlent lestrarefni, fyrst og fremst
enskt, verður stöðugt ódýrara og auð-
fengnara, og jafnvel þótt málakunnátt-
an sé ófullnægjandi, mun metnaðar-
girni einstaklingsins stuðla að ensku-
lestrinum, sem þjónar framavon hans
og eykur framtíðarmöguleika.
Samtímis verða hin þjóðlegu menn-
ingartæki óvirkari, innlendar bækur
verða tiltölulega dýrari, lífsafkomu rit-
höfundanna er stefnt í voða. Þessari
framvindu verður hraðað af hinni al-
mennu alþjóðahyggju, hinum pólitíska
og efnahagslega samruna Evrópu, kvik-
myndunum, sem stefnt hafa í þessa átt
í 30 ár, af Evrópusjónvarpinu, út-
varpinu, tímaritunum og vikublöðun-
um. Þegnar smáþjóðanna munu flýja