Stjórnartíðindi fyrir Ísland: C-deild - 01.12.1895, Page 50
4s
Við þenna sanianburð er það athugavert, að skýrslunum 1879 hefir verið raðað á
nokkuð annau hátt eu uú er gjört; er þar enginn greinarmunur gjörður á ábyrgðarbrjef-
um (NB) og peningabrjefum, Og því hvortveggju talin í sama flokki. Hið sama á sjer
einnig stað um almenna böggla og böggulsendingar með ákveðnu verði. Verðupphæð
peningabrjefanna og böggulsendinganna er sömuleiðis slengt saman í eitt; samt sem áður
er auðvelt að gjöra sjer all-glöggva grein fyrir því, hve mjög póstflutningar hafa vaxið
frá útlöndum til þessara staða á þessutn 15 árum.
Almenn brjef hafa vaxið uin 309,7 °/o.
Abyrgðar- og peningabrjef 160 °/°.
Böggulsendingar 137,5 °/o.
f>að er ennfremur athugandi, að til hafnarstaðanna fyrir utan Beykjavík hafa þetta
ár sem endraruær komið fleiri brjef og sendingar frá útlöndum, en þau sem hjer eru
talin ; kemur það til af því, að þegar strandferðaskipið hættir hringferð sinni á haustin,
eru brjef og bögglar þangað sendir í gegnum póststofuna í Beykjavík. Eru þær sending-
ar taldar komnar til Beykjavíkur, án tillits til þess, hvert þær eiga að fara.
Ekki er hægt að ákveða með neinni vissu, hve mörg brjef komi frá hverju einstöku
landi utanríkis fyrir sig, en það mun óhætt að fullyrða, að þau muni langflest koma frá
Danmörku, sem eðlilega stafar af því ríkis- og verzlunarsambandi, sem vjer stöndum í við
Dani. Næst Danmörku mun brjefafjöldinn vera frá Norður-Ameríku, einkum Canada;
eru það vesturfarir Isleudinga, sem eiga allmestan þátt í því. Samband verzlunarmanna
við jþýzkaland er mikið að aukast, enda fara brjefaviðskipti milli íslands og þiýzkalands
alltaf í vöxt ár frá ári; mun óhætt að telja það hið þriðja f röðinni, þegar talað er um
brjefaskipti Islands við útlönd. Prá Frakklandi kemur og rnikið af brjefum fyrri hluta
sumars ár hvert, sem leiðir af fiskiförum Frakka til landsins. Frá Norvegi og Svíþjóð
kemur einnig talsvert af brjefum, einkum til vestur- og austurlandsins, sem mestmegn-
is stafar af hvala- og síldarveiðÍDni. Bretar hafa tiltölulega lítil brjefaskipti við Is-
land, og fátt annað en það sem skrifað er í verzluuarerindum, en þau eru miklu meiri
við þýzkaland. Annara ríkja búar en þeir sem þegar eru taldir, hafa mjög lftið saman
við íslendinga að sælda; eru það helzt frímerkjasafnendur víðsvegar um heim, sem
skrifast á við samverkamenn sína hjer heima, auk nokkurra manna, sem eiga hjer á
landi vandamenn eða vini.
Brjefaskipti innanlands eru langmest á vetrum, enda flytjast flest brjef með póstum
á tímabilinu frá októbermánaðarbyrjun fram í marz. Stafar það af því, að þann hluta
árs er fjöldi fólks frá heimili síuu, í öðrum sveitum og landshlutum, sem ýmist er að
námi, eða stundar fiskveiðar á vetrarvertíðum, eða eru fjarvistum af öðrum ástæðum.
Minnst skipti með póstum eru þar á móti, þegar kemur fram í júnímánuð, þangað til i
ágúst. Dm það leyti er líka einna mest um ferðalög. Kaupafólk fer þá aveit úr sveit,
að leita sjer atvinnu. Verzlunarviðskipti landsmanna eru þá einna mest. Með þessum
ferðum berzt fjöldi brjefa manna á millum, sem eigi verður tölu á komið. Innanlands
brjefaskriptir eru þvf í raun og veru miklu meiri, en unht er að ákveða eptir þeim gögn-
um, sem þessar skýrslur eru samdar eptir.