RM: Ritlist og myndlist - 01.06.1947, Blaðsíða 29
UFANDI VATN
RM
helauman líkama hans þreifuðu
hendur, mannahendur. Eitthvað tog-
aði í hann, vatnið skolaðist um höf-
uð hans og liann kingdi dálitlu af því,
hann sveið í augun, hendurnar voru
dofnar og fæturnir eins og blý. Já,
einhver var að draga hann gegnum
vatnið. Hann baðaði út höndunum,
stefnulaust og í blindni. En þar var
ekkert fyrir. Aðeins loft og vatn. Eyði
og tóm. Allt í einu glumdi ógurlegur
hávaði í eyrum hans. „Guði sé lof!
Guði almáttugum sé lof! Er það ekki
dásamlegt? Er það ekki stórkost-
legt?“ Fagnaðarópunum rigndi yfir
hann. Eitthvað, sem líktist hlýju,
snerti hann, hlýju frá mönnum.
Margar hendur drógu hann upp úr
vatninu. Sundinu var lokið, hann
hafði náð til lands. Hið lifandi vatn
fjarlægðist og hvarf sjónum, hvarf úr
huganum, mjúkur fjörusandurinn lét
Enska blaðið Sunday Times liefur stofn-
að til bókmenntaverðlauna, er veita skal
árlega. Nema þau £ 1000 og munti vera hin
hæstu í Englandi. Engum höfundi má veita
verðlaunin oftar en einu sinni.
— Spurning: Hvenær stofna íslenzk fyr-
trtæki sjóð til að verðlauna afrek á sviði
vísinda, lista eða bókmennta?
☆
J'áir rilhöfundar eru nú ofar á baugi en
þýzk-tókkneski gyðingurinn Franz Kajka,
sem lézt 1924, fertugur að aldri. Gyðinga-
forlagið Scbocken liefur nú hafið heildarút-
gáfu á verkum hans, og eiga þau að koma
ut samtímis á þýzku og ensku. -— André
Gide hefur nýlega umsamið fyrir leiksvið
sögu Kafka, Der Prozess.
vel að örþreyttum líkama hans. Menn-
irnir stóðu þarna yfir honum og
skröfuðu. Svo dró úr honum allan
raátt, hann fann til ægilegs sársauka
og lokaði augunum.
Einhver hélt höfði hans, annar fót-
unum. Þeir báru bann burtu.
„Synti nærri því þrjár mílur,“
sagði einn, og í rómnum var lotning
og furðun. „I þessari foráttu!“
„Hver skyldi trúa?“ sagði annar.
„Óskiljanlegt, það veit sá, sem allt
veit!“
Aðdáun þeirra átti sér engin tak-
ntörk.
„Honum er ekki fisjað saman,“
sögðu þeir. „Hreint ekki fisjað sam-
an.“
Ljósin dóu smáin saman út, og
mennirnir héldu burt með byrði sína.
Þórarinn Guðnason íslenzkaði.
Mynd: Kjartan Guðjónsson.
Einn af helztu gagnrýnendum Bonniers
Eitterára Magasin, Holger Ahlenius, skrifar
nýlega í Parísarbréfi til tímaritsins, að er
hinn víðfrægi, ameríski negrarithöfundur,
Richard Wright, kom til Parísar fyrir nokkr-
um mánuðum, liafi ameríska sendisveitin
símað blöðunum og farið fram á, að þau
birlu ekki viðtöl við þennan þeldökka höf-
ii nd!
☆
Fyrir stuttu kom út ný skáldsaga eftir
John Steinbeck, The Wayurnrd Bus. Sagan
þykir laka mjög fram tveim síðustu bókum
böfundarins og sýna nýja og óvænta hlið á
hæfileikum hans. Bókin hefur orðið fyrir
vali Book-of-the-Month klúbbsins og fengið
lofsamlega dónia báðum megin hafsins.
27