Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Qupperneq 4

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Qupperneq 4
Kazuo ishiguro „Ef ég heföi skrifaö Réttarhöldin heföi fólk sagt: „Mikiö er réttarkerfiö í Japan undarlegt.““ Um þessar mundir kemur út nýjasta bók Ishiguros, Dreggjar dagsins, í íslenskri þýðingu Sigurðar A. Magnússonar. ✓ A síðustu árum hafa fáir enskir ri thöfundar vakið meiri athygli en Kazuo Ishiguro. Hverrar nýrrar bókar hefur verið beðið með mikilli efúr- væntingu af áhugamönnum um bókmenntir. Athyglin sem þessi ungi höfundur hefur hlotið er ekki eingöngu bundin við heimalandið, bækur hans hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál. Kazuo Ishiguro hefur sent frá sér þrjár bækur og þær þykja hver annarri betri. Allar hafa þær unnið til bók- menntaverðlauna. Fyrsta bók hans sem kom út 1982, A Pale View ofHills, vakti mikla athygli á Ishiguro og þótti sérstaklega gott byrjandaverk. Fyrir hana hlaut hann verðlaun Royal Society of Literature. Fjórum árum síðar eða 1986 kom út Whitebread-verðlaunabókin An Artist ofthe Floating World, sú bók var einnig tilnefnd til Booker-verðlaunanna sama ár. Þótti Ishiguro hafa stigið stórt skref ffam á við meö þeirri bók. 1989 sendi hann svo ffá sér bókina The Remains ofthe Day, sem hlaut hin eftirsóttu Booker- verðlaun 1989. Þessi nýjasta bók Ishiguros Dreggjar dagsins kom út í íslenskri þýðingu Sigurðar A. Magnússonar nú fyrir skömmu. Með þessari BJARTUR OG FRU EMILIA • TIMARIT

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.